Litli Bergþór - 01.12.2005, Síða 5
Hvað segirðu til?
Helstu tíðindi úr sveitinni í júní til nóvember.
Tíðarfarið hefur verið breytilegt í sumar og
haust. Sæmilega hlýtt var í sumar, og allmargir sól-
ríkir logndagar, væta bagalega lítil fyrir gróður
framan af sumri eftir kalt og þurrt vor, og þá góð tíð
til heyskapar en meira var um skúrir er sumri hall-
aði. Vöxtur grasa og trjáa var því allgóður og
heyfengur grasbænda mikill. Spretta á
komökrunum var góð og mun uppskera hafa náðst
a. m. k. að mestu óskemmd í hús þrátt fyrir nokkrar
tafir við komskurð vegna bilana á vélbúnaði.
Tíðarfar var umhleypingasamt seinnipart sumars og
í haust. Frost var ekki vemlegt framan af hausti og
aðeins lítið snjóföl á jörð á láglendi stöku sinnum
síðla í september og framan af október. Síðari hluti
októbermánuðar var hins vegar fremur kaldur en
hlýnaði nokkuð í nóvember, en tíð var umhleyp-
ingasöm í þeim mánuði.
Helstu menningarviðburði í sumar voru Skál-
holtshátíð á Þorláksmessu á sumri og sumartón-
leikar þar um nokkrar miðsumarshelgar.
Bama- og kammerkór Biskupstungna bauð til
styrktartónleika í Skálholtskirkju snemma í júlí, og
var það skömmu áður en kórinn hélt til Japan, þar
sem hann kom fram á heimssýningunni.
I fyrstu viku júlí komust þrír Biskupstungna-
menn, Bragi Þorsteinsson á Vatnsleysu, Bjöm
Sigurðsson í Úthlíð og Amór Karlsson í Reykholti,
á áttræðisaldur. Af því tilefni buðu þeir sveitungum
sínum, frændliði og öðrum vinum að koma í
Aratungu eitt kvöldið í þeirri viku, þiggja veitingar,
syngja, hlusta á söng annarra og gleðjast saman á
annan hátt. A þessari samkomu fengu aðeins fáir
útvaldir að halda ræðu.
Snemma í október bauð jafnaldri þeirra, Haukur
Ingvarsson í Bergholti, til veislu á sama stað að
kvöldi afmælisdags síns. Þar var borðað, dmkkið,
sungið, hlýtt á einsöngvara og nokkrar ræður.
í tilefni af fertugsafmæli sínu efndi Steinunn
Bjamadóttir á Brautarhóli til samkomu í
Gistiheimilinu Geysi síðast í október. Þar nutu
gestir veitinga, sungu, fluttu og hlýddu á ræður og
dönsuðu fram á nótt.
Bjami Sigurðsson í Haukadal hélt sitt árlega
Bjamaball í Aratungu undir lok ágúst. Þar skemmti
fólk sér við hljóðfæraleik, söng og dans.
Helstu atriði í starfi Hestamannafélagsins Loga í
sumar vom firmakeppni og fjölskyldudagur í júní,
sumarútreiðartúr í kringum Bjamarfell síðla í júlí
og hestaþing í Hrísholti síðustu daga í þeim
mánuði.
Skálholtskórinn hóf æfingar um miðjan septem-
ber, og mun hann starfa á hefðbundinn hátt í vetur
með reglulegum æfingum einu sinni í viku. Hann
tók þátt, ásamt öðrum kórum á Suðurlandi, í ára-
mótakveðju ríkisútvarpsins, sem tekin var upp á
haustdögum. Hilmar Öm Agnarsson, organisti í
Skálholti, stjómar Skálholtskórnum og einnig
Bama- og kammerkór Biskupstungna.
Sveitarstjómarmenn Þ-listans, sem fer með
meirihlutavald í Bláskógabyggð, kynntu helstu mál,
sem á dagskrá eru hjá þeim, á Klettinum síðast í
ágúst, nýráðinn sveitarstjóri, Valtýr Valtýsson,
kynnti sig og áherslur sínar í því starfi.
Snemma í september efndu slökkviliðsmenn
Brunavarna Amessýslu ásamt björgunarsveitum og
lögreglu í sýslunni til sýningar í Reykholti á björg-
unarbúnaði og notkun hans.
„Létt-menningarvaka Kaffi Kletts“ á haust-
dögum var á veitingastaðnum með því nafni í
Reykholti snemma í október. Þar skemmti
„Blandon-bandið“, sem í eru Eyfirðingamir Hannes
Blandon, prófastur Eyfirðinga, dætur hans, Hanna
og Sara, og Eiríkur Bóasson, garðyrkjufræðingur,
með hljóðfæraleik, söng og frásögnum. Önnur slík
vaka var í byrjun nóvember. Þar skemmti Kristján
Hjartarson frá Tjöm í Svarfaðardal með söng,
frásögnum og gítarleik ásamt eiginkonu sinni,
Kristjönu Arngrímsdóttur, söngkonu. Áfonnað mun
vera að slíkar vökur verði þar í byrjun hvers
mánuðar til vors.
Á liðnum vetri kom út söguleg skáldsaga,
Haustgotasaga, eftir Guðmund Óla Ólafsson,
fyrrverandi sóknarprest í Skálholti, sem hann skrifar
undir skáldanafninu Semingur.
I október kom út hjá Sunnlensku bókaútgáfunni
ljóðabókin Einnar bám vatn eftir Sigríði Jónsdóttur
í Amarholti. Þessar bækur vom kynntar á kvöld-
samkomu á Klettinum síðla í október.
Undir miðjan október var eldri borgurum í upp-
sveitum Árnessýslu boðið til samveru í Skálholts-
skóla. Þar flutti Bemharður Guðmudsson, rektor,
erindi um Brynjólf biskup Sveinsson og Þóra
Kristjánsdóttir, listfræðingur, sagði frá munum og
minjum frá tíma Brynjófs.
Seint í október voru haldnir í Slakka
í Laugarási tveir fyrirlestrar. Skúli
Sæland, sagnfræðingur, í Varmagerði
fjallaði um aðdragandann að stofnun
Vatnsveitu Laugarásshverfis, og Ingólfur
Guðnason, garðyrkjubóndi á Engi nefndi
sinn fyrirlestur Klausturgarðar.
Jurtagarðar miðalda fundnir?
Til undirbúnings kosninga um sam-
einingu sveitarfélaga í uppsveitum
Ámessýslu efndi sameiningamefndin til
-------------------------------- 5 Litli Bergþór