Litli Bergþór - 01.12.2005, Page 12
Frá íþróttadeild Umf. Bisk.
Sumarstarfið var með hefðbundnu sniði eins og
svo oft áður.
Æfingar byrjuðu 14. júní og þeim lauk seinni-
partinn í ágúst.
Ekkert íþrótta- og leikjanámskeið var haldið þetta
sumarið, vegna frekar lítillar þátttöku undanfarin ár.
Sundnámskeið fyrir börn fædd 2001 og eldri var
haldið í Reykholtslaug 27. júní — 12. júlí.
Kennari var Magnús Tryggvason, sundþjálfari.
Agætis aðsókn var að námskeiðinu í ár og var böm-
unum skipt í hópa eftir aldri. Almenn ánægja var
með námskeiðið og töluvert var um miklar fram-
farir.
Knattspymuæfingarnar voru vinsælar nú sem
áður. Æfingar voru einu sinni í viku, á
þriðjudögum, fyrir yngsta hópinn; 1. — 4. bekk. 5.
- 10. bekkur æfði tvisvar sinnum í viku, á þriðju-
dögum og fimmtudögum, og var hópnum skipt í
tvennt þ.e. mið- og eldri hóp. Þjálfari var Jóhann
Pétur Jensson.
Þjálfari rœðir við knattspyrnumenn. Frá vinstri: Hlynur
Brynjófsson, Guðbjörn Brynjólfsson, Finnur Jóhannesson,
Guðmundur Sveinbjörnsson, Stefán Geir Snorrason, Jóhann
Pétur Jensson, Jón Oskar Jóhannesson.
Lið frá Flúðum komu og spiluðu æfingaleiki við
okkar lið um miðjan ágúst. Liðin okkar stóðu sig
með sóma, mikið kapp var í leikmönnum og lögðu
allir sig fram.
Boðið var upp á æfingar í frjálsum íþróttum, í
samstarfi við Hrunamenn, og áttu þær að vera á
Flúðum. Ekki hefur verið mikil aðsókn af okkar
börnum í frjálsar undanfarið, en þó kepptu nokkrir
efnilegir íþróttamenn á mótum í sumar, t.d. á
landsmótinu í Vík.
Ungir knattspyrnumenn. Efri röðfrá vinstri: Hákon Karlsson,
Oðinn Svavarsson, Finnur Jóhannsson, Gabríel Hilmarsson.
Neðri röð frá vinstri: Kristinn Sölvi Sigurgeirsson, Aron
Margeirsson, Bernharður Magnússon, Einir Orri Biynjólfsson.
Að lokum má geta þess að við tókum þátt í
Þriggja-félagamótinu utanhúss í byrjun september.
Það voru frískir krakkar sem kepptu fyrir hönd
félagsins og stóðu sig með sóma, og munaði mjóu
að við hrepptum bikarinn, en það voru Laugvetn-
ingar sem náðu honum í þetta skipti. Við stefnum
bara á að vinna hann næsta haust.
Áfram Umf. Bisk.
Fyrir hönd stjómar íþr.d. Umf. Bisk.
Kristín Bj. Guðbjörnsd.
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum.
Efnissala og varahlutaþjónusta.
Fljót og góð vinna.
Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki
um öll leyfi fyrir heimtaug að
sumarhúsum og lagningu raflagna.
Jens Pétur Jóhannsson
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
HEIMASIMI 486 8845
Verkstæði sími 486 8984
GSM 893 7101
Litli Bergþór 12