Litli Bergþór - 01.12.2005, Síða 13
Noregsferð 2005
Við, Samúel Birkir, Gísli Þór og Pálmi Eiríkur,
vorum valdir af stjórn Glímusambands Islands til að
fara til Stavanger í Noregi til að sýna og æfa glímu.
Þeir glímumenn, sem eru í Úrvalshópi GLÍ, áttu
þess kost að fara í þessa ferð. Þegar við komum í
Leifsstöð hittum við hina ferðafélaga okkar. Við
vorum sjö glímumenn og fararstjórarnir tveir, þau
Lárus Kjartansson og Sabína Halldórsdóttir. Flogið
var af stað snemma morguns þriðjudaginn 31. maí
og millilent í Kastrup áður en flogið var til
Stavanger. A Kastrup hittum við Lars Enoksen.
Lars, sem er Svíi er mjög áhugasamur um glímuna,
og er mikið að koma fram á víkingasýningum
víðsvegar um heiminn. Lars var með okkur allan
tímann í Noregi kenndi okkur lausatök og „back-
hold.“
Þegar við komum til Noregs fórum við í
hermannabúðir, sem við gistum í. Þar var aðstaðan
alveg bærileg. Strax fyrsta daginn hófum við
æfingar í glímu, lausatökum og backhold. Við
tókum þátt í mikilli víkingasýningu, þar sem leikin
var Hafursfjarðarorrusta á sama stað og Haraldur
Hárfagri lagði undir sig Noreg árið 873, en nokkur
þúsund áhorfendur fylgdust með sýningunni. Þá
tókum við þátt í einni stórri leiksýningu og síðan í
nokkrum minni. Heppnuðust allar sýningamar vel.
Á norskri grund. Frá vinstri: Samúel Birkir í Hjarðarlandi,
Pálmi Eiríkur á Þórisstöðum í Grímsnesi, Gísli Þór á Heiði.
/
Samúel Birkir sýnir Norðmönnum glímu.
Þess á milli fórum við í miðbæinn að versla, í bíó
og fleira.
Marartímamir í herbúðunum vom fhafa
svolítið skrítnir, morgunmatur frá 6 — 9
og kvöldmaturinn frá 16 — 18. Voru því
margir orðnir svangir seinna um kvöldið og
var þá oftast skroppið í miðbæinn og keypt
í matinn. Við fórum á víkingaskip og
sigldum um fjörðinn og tókum meira að
segja þátt í ópera í eitt skiptið. Alla vikuna
voru víkingabúðir með fólki af mörgum
þjóðemum við fjörðinn. Var fólkið annað
hvort að sýna skylmingar eða selja alls
kyns hluti, s.s. silfur- og bronsskartgripi,
sverð og fleira svoleiðið.
Síðasta kvöldið bauð svo Lars öllum í pizzu,
sódavatn og í keilu. Daginn eftir fórum við svo
heim. Við millilentum í Kastrup og fengum okkur í
svanginn. Svo lentum við á Islandi um sjö leytið 6.
júní og komum heim til okkar um kl. 22. Vorum við
þá frekar þreyttir, en þrátt fyrir það vorum við mjög
ánægðir með gengi ferðarinnar.
Við viljum þakka sérstaklega fyrir þá styrki, sem
við fengum til ferðarinnar.
Með glímukveðju, Samúel Birkir Egilsson, Gísli
Þór Brynjarsson, Pálmi Eiríkur Gíslason.
Heimasímar:
Loftur: 486 8812
8531289
VÉLAVERKSTÆDL
________Heimasímar:
Guðmundur: 486 8817
Helgi: 482 3182
IÐU • BISKUPSTUNGUM
SlMI 486-8840 • FAX 486-8778
KT. 490179-0549
Viðgerðir á búvélum og öðrum tækjum í landbúnaði.
Bifvélaviðgerðir - Smurþjónusta - Olíusíur í bíla og dráttarvélar
13 Litli Bergþór