Litli Bergþór - 01.12.2005, Side 26
hún felld með 5 atkvæðum á móti, 2 atkvæðum með.
Tillaga Þ-listans borin upp til atkvæða og hún sam-
þykkt með 5 atkvæðum, en 2 atkvæði á móti Kjartan
Lárusson og Drífa Kristjánsdóttir gera grein fyrir atkvæði
sínu. Þau telja óeðlilegt, fimm dögum fyrir
sameiningarkosningar, að binda hendur hugsanlegs nýs
sveitarfélags með heimild um sölu hitaveitnanna.
Þ-listinn undrast hugarfarsbreytingu T-listans á þess-
um tímapunkti. T-listinn stóð að viljayfirlýsingu Blá-
skógabyggðar og OR frá því í júlí 2003 og hefur ekki
fyrr en nú gert athugasemdir við þessar viðræður. Á
fundi sveitarstjómar þann 12. júlí síðastliðinn var tekin
endanleg ákvörðun um áframhaldandi viðræður og var þá
eina athugasemd T-listans að þau fengu ekki að vera með
í þeim.
Drífa Kristjánsdóttir vill árétta að engar hugarfars-
breytingar hafi átt sér stað hjá henni, heldur fyrst og
fremst tímasetning framkominnar tillögu Þ-listans.
Beiðni um afgreiðsiu tilkynningar um flutning
lögheimilis í frístundarhús, Stóranef 8. Lagt fram bréf
frá Teiti Eyjólfssyni, dags. 27. september 2005, þar sem
hann óskar eftir afgreiðslu tilkynningar um flutning
lögheimilis að Stóranefi 8 í Eyvindartungulandi. Einnig
lagt fram afrit af flutningstilkynningu, dags. 20. septem-
ber 2005, útkrift úr fundargerð skipulagsnefndar upp-
sveita Ámessýslu, dags. 23. júní 2005, yfirlýsing frá
tveimur íbúum í Laugardal, dags. 27. september 2005, og
bréf frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, dags. 27. septem-
ber 2005.
Sveitarstjóm telur sér ekki fært að hafna erindinu og
staðfestir flutningstilkynningu Teits Eyjólfssonar og fjöl-
skyldu, enda verði farið í endurskoðun aðalskipulags
þessa svæðis með það að markmiði að gera viðhlýtandi
breytingu á landnotkun. Skipulagsfulltrúa falið að vinna
að breytingu aðalskipulagsins.
Hugmyndir Afþreyingarfélagsins ehf. um uppbygginu
við Skálpanes.
Lagðar fram teikningar af hugmyndum Afþreyingar-
félagsins ehf. um uppbyggingu á aðstöðu félagsins við
Skálpanes.
Sveitarstjóm tekur vel í fyrirliggjandi hugmyndir
Afþreyingarfélagsins, en leggur áherslu á að skoða
verður sérstaklega hvaða áhrif þessi uppbygging gæti
haft á umhverfi Skálpaness m.t.t. vatns- og náttúm-
vemdar.
Austureyjavegur. Afgreiðslu málsins frestað á síð-
asta fundi byggðaráðs. Lögð fram tölvuskeyti með upp-
lýsingum um stöðu málsins, frá Svani Bjamasyni hjá
Vegagerðinni. Einnig lögð fram ósk Vegagerðarinnar að
heimila útboð á framkvæmdunum vegna fyrirhugaðrar
uppbyggingar Austureyjarvegar (Eyjavegar 354-02),
dags. 20. september 2005.
Sveitarstjóm samþykkir að sveitarfélagið verði fram-
kvæmdaraðili að verkinu, í samræmi við ósk Vegagerðar-
innar, og sjái um greiðslu reikninga. Lögð er áhersla á að
samþykkt sveitarstjómar gerir ráð fyrir að af safnvegafé
sveitarfélagsins fari kr. 4,5 millj. á ámnum 2005 —
2009. Ekki er gert ráð fyrir að meira fé fari til þessarar
vegagerðar af safnvegafé.
Sveitarstjóm samþykkir beiðni Vegagerðarinnar, dags.
20. september 2005, en leggur áherslu á að fyrir liggi
samningur við landeigendur og Rafiðnaðarsambandið um
aðkomu þeirra að málinu, áður en tilboði verður endan-
lega tekið.
Kjartan Lárusson sat hjá við afgreiðslu þessa liðar.
48. fundur sveitarstjórnar 18. október 2005
Mættir vom allir sveitarstjómarmenn nema Snæbjöm
Sigurðsson en fyrir hann Gunnar Þórisson. Einnig Valtýr
Valtýsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.
Endurskoðun fjárhagsáætlunar Bláskógabyggðar
2005, önnur umræða.
Valtýr Valtýsson kynnti tillögu um breytingu á
fjárhagsáætlun Bláskógabyggðar fyrir árið 2005 fyrir
aðalsjóð og samstæðureikning sveitarfélagsins. Síðari
umræða. Heildartekjur samstæðu Bláskógabyggðar, þ.e.
sveitarsjóðs og félaga í eigu sveitarfélagsins em áætlaðar
kr. 495.735.000. Rekstrargjöld ásamt afskriftum kr.
492.277.000. Fjármagnsgjöld áætluð kr. 29.258.000.
Rekstramiðurstaða samstæðureiknings samkvæmt áætlun
verður neikvæð að upphæð kr. 25.800.000. Gert er ráð
fyrir að fjárfestingar ársins verði kr. 117.500.000. Gert er
ráð fyrir lántöku vegna Grunnskóla Bláskógabyggðar og
leikskóla á Laugarvatni kr. 75.000.000, vegna fráveitna
kr. 3.000.000 og vegna kaupa á hluta Dalbrautar 12, kr.
4.000.000.
Oddviti bar upp tillögu að breytingu á fjárhagsáætlun
2005. Samþykkt samhljóða.
49. fundur sveitarstjórnar 8. nóvember 2005.
Mættir voru allir sveitarstjómarmenn og Valtýr
Valtýsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.
Austureyjarvegur. Lagt fram erindi frá Vegagerðinni
í kjölfar opnunar tilboða í Eyjaveginn, dags 2/11/2005.
Sveitarstjóm samþykkir samhljóða að gengið verði til
samninga við lægstbjóðanda á gmndvelli tilboðs um 6,5
km veg að upphæð 18,3 m. kr., með fyrirvara um að for-
sendur Vegagerðarinnar um einingarverð efnis standist.
Skipulagsmál
1. Breyting aðalskipulags Biskupstungna — Fell.
Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags
Biskupstungna 2000 — 2012, Fell, unnin af Pétri H.
Jónssyni í október 2005. Um er að ræða 26 ha landsvæði
sem breytt verður úr landbúnaðamotum í frístundabyggð
og útivist. Sveitarstjóm Bláskógabyggðar samþykkir
samhljóða að auglýsa breytingatillöguna skv. 18. gr.
Skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997, og felur skipu-
lagsfulltrúa að vinna málið áfram.
2. Breyting aðalskipulags Biskupstungna — Laugarás.
Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags
Biskupstungna 2000 — 2012, unnin af Pétri H. Jónssyni.
Breytingin felst í að:
1. Athafnasvæði stækkar til suðurs um 0,7 ha og
íbúðarsvæði minnkar sem því nemur.
2. Opið svæði til sérstakra nota (ca. 1 ha) breytist í
íbúðarsvæði.
Sveitarstjóm Bláskógabyggðar samþykkir samhljóða
að auglýsa breytingartillöguna skv. 18. gr. Skipulags og
byggingarlaga nr. 73/1997, og felur skipulagsfulltrúa að
vinna málið áfram.
3. Staðfest breyting aðalskipulags Laugardals —
Lækjarhvammur, skv. bréfi frá Umhverfisráðuneytinu
dags. 26. október 2005. Til kynningar.
4. Tillaga að breytingu aðalskipulags Biskupstungna -
Brúarhvammur.
Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags
Biskupstungna 2000 — 2012, unnin af Verkfræðistofu
Suðurlands. Einnig lögð fram athugasemd frá Jóni G.
Guðlaugssyni, dags. 12. september 2005. Umrædd tillaga
Litli Bergþór 26