Litli Bergþór - 01.04.2006, Síða 10
Reykholtshverinn
✓
- Atökin um heita vatnið -
Formáli
Forsaga þessarar stuttu greinar er sú að mér barst
til eyrna að Eiríkur Sæland, afi minn, hefði staðið í
málaferlum í Reykholti vegna heitavatnsréttinda
fyrir hönd nágranna sinna. Þetta vakti eðlislæga
forvitni mína og ég byrjaði að kafa í tiltækar heim-
ildir. Mér þótti efnið forvitnilegt og vel til þess fallið
að birta það Tungnamönnum og öðrum sem áhuga
kynnu að hafa á þróun byggðar í Tungunum upp úr
miðri síðustu öld. Vorið 2005 samdist svo um að
þessi greinarstúfur birtist á sameiginlegri vefsíðu
uppsveitahreppanna, www.sveitir.is þar sem hana er
að finna.
I stöðugri leit ritnefndarmanna Litla-Bergþórs að
efni til birtingar á síðum blaðsins bar þessa grein á
góma og úr varð að ákveðið var að birta hana hér.
Megi lesendur njóta hennar lfkt og ég á meðan ritun
hennar stóð.
Aðdragandinn
Um miðjan sjötta áratuginn blasti við alvarlegur
og aðkallandi vandi að bæði landeigendum í
Reykholti og Biskupstungnahrepp. Örsökin lá í and-
varaleysi við öflun og dreifingu heitavatns þrátt fyrir
öra fjölgun bújarða í Reykholti samfara hraðri upp-
byggingu garðyrkjustöðva.
Frá því að Þorsteinn B. Loftsson og Vilhelmína
Loftsson keyptu Stóra-Fljót, og hófu byggingu
garðyrkjustöðvar árið 1938, og fram undir miðjan
sjötta áratuginn höfðu alls átta jarðspildur verið
keyptar á Reykholtstorfunni og bygging
garðyrkjustöðva verið hafin á a.m.k. sex þeirra.
Samfara þessu tók nýr skóli til starfa 1957 því sá
eldri sem vígður hafði verið 1928 þótti orðinn lítill
og óhentugur. Litið var til Reykholts sem framtíðar
þéttbýlissvæði í sveitinni og höfðu því einnig hafist
framkvæmdir við byggingu Félagsheimilins
Nokkrir af vatnseigendum Reykholtshvers létu taka mynd afsér við hverinn. Tilefnið var sennilega vœntanleg bygging vatnstanks til
að miðla heitu vatni um byggðina. F.v. Kristinn Sigurjónsson Brautarhóli, Guðjón Bjömsson garðyrkjumaður Víðigerði og
Reykjavöllum, Eiríkur Á. Sceland Sjónarhóli (síðar Espiflöt), lngvar Ingvarsson Birkilundi, Ólafur Sveinsson Víðigerði og Ragnar
Jónsson veitingamaður Stóra-Fljóti. Að aftan á vinstri hönd má sjá hvemig upphaflega hafði verið steypt yfir hverinn en fjœr sést
garðyrkjustöð Stóra-Fljóts sem síðar komst í eigu ábúenda Gufuhlíðar.
Litli Bergþór 10