Litli Bergþór - 01.04.2006, Síða 24
umrædda breytingartillögu á aðalskipulagi
Biskupstungna sbr. 18. gr. Skipulags- og byggingar-
laga, með fyrirvara um að Austurás verði áfram merkt-
ur sem landbúnaðarsvæði, og felur skipulagsfulltrúa að
vinna málið áfram.
2. Iða II í Biskupstungum; utan þéttbýlisuppdráttar
Laugaráss.
Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags
Biskupstungnahrepps 2000 - 2012 á svæði utan
þéttbýlisuppdráttar Laugaráss. Tillagan gerir ráð fyrir
að 77 ha lands breytist úr svæði undir landbúnað í
svæði undir frístundabyggð. Þau svæði eru vestan
þjóðvegar að Hvítá og austan hans á móts við frí-
stundabyggð í hlíðum Vörðufells.
Tillagan var í kynningu frá 16. nóvember - 14.
desember 2005. Frestur til að skila inn athugasemdum
var til 28. desember 2005. Athugasemdir Skipu-
lagsstofnunar, sem komu fram áður en tillagan var
auglýst, voru kynntar með tillögunni á auglýsingartíma.
Vegna athugasemda Skipulagsstofnunar, sem snertir liði
1., 2. og 3. vísast til sérstakrar bókunar sveitarstjómar
undir lið 3. Engar aðrar athugasemdir bárust.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir samhljóða
umrædda breytingartillögu á aðalskipulagi
Biskupstungna sbr. 18. gr. Skipulags- og byggingar-
laga, og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.
3. Kjaransstaðir í Biskupstungum.
Lögð var fram tillaga að breytingu aðalskipulags
Biskupstungnahrepps 2000 -2012. Tillagan gerir ráð
fyrir því að 77 ha lands í nyrsta hluta jarðarinnar
breytist úr landbúnaðarsvæði í frístundabyggð.
Tillagan er auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi
frístundalóða á umræddu svæði.
Tillagan var í kynningu frá 16. nóvember - 14.
desember 2005. Frestur til að skila inn athugasemdum
var til 28. desember 2005. Athugasemdir
Skipulagsstofnunar, sem komu fram áður en tillagan
var auglýst, vom kynntar með tillögunni á auglýs-
ingartíma. Engar aðrar athugasemdir bárust.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir samhljóða
umrædda breytingartillögu á aðalskipulagi
Biskupstungna sbr. 18. gr. Skipulags- og byggingar-
laga, og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.
Bókun sveitarstjómar vegna bréfs Skipulags-
stofnunar og athugasemda, dags. 20. október 2005:
í bréfi Skipulagsstofnunar, dags. 20. október 2005,
gerir stofnunin athugasemdir við að með aðalskipulags-
breytingum í landi Iðu og Kjaranstaða sé verið að
stækka verulega það svæði sem ætlað sé undir
frístundabyggð í Biskupstungum, skv. aðalskipulagi
Biskupstungnahrepps 2000 - 2012. Þessar athugasemdir
snerta liði L, 2. og 3.
Jafnframt var bent á í bréfinu, að „áhrif frístunda-
húsabyggðar á umhverfi og samfélag vom ekki metin
nema að litlu leyti á aðalskipulagi Biskupstungna-
hrepps 2000 - 2012 og ekki er gerð tilraun til þess að
meta þessi áhrif í tilefni af þeim þremur breytingum
sem nú liggja fyrir“.
Sveitarstjórn bendir á, að síðan aðalskipulag
Biskupstungnahrepps 2000 - 2012 var unnið hefur upp-
bygging á frístundasvæðum og ásókn í frístundahús
verið mun meiri en menn sáu fyrir. I gildandi aðal-
skipulagi er gert ráð fyrir því að þétting frístunda-
byggðar verði fyrst og fremst í tengslum við þau svæði
Litli Bergþór 24 _____________________________________
sem frístundahús eru fyrir. Þessar breytingartillögur
sem nú liggja fyrir samræmast þessu ágætlega auk þess
sem umrædd landsvæði hafa ekki verið nýtt til land-
búnaðar undanfarin ár. Á Kjaranstöðum er reyndar ekki
mikil frístundabyggð fyrir, en þar er heldur ekki gert
ráð fyrir þéttri byggð þar sem hver lóð verður u.þ.b. 10
ha að stærð. Sveitarstjórn telur að umræddar aðalskipu-
lagstillögur hafi jákvæð áhrif á samfélagið og muni
bæta búsetuskilyrði og leggur því til að breytingamar
verði staðfestar.
4. Fell í Biskupstungum.
Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags
Biskupstungnahrepps 2000 - 2012. Tillagan gerir ráð
fyrir því að 26 ha lands í landi Fells sunnan
Biskupstungnabrautar, breytist úr landbúnaðarsvæði í
frístundabyggð. Tillagan er auglýst samhliða tillögu að
deiliskipulagi frístundalóða á umræddu svæði. Engar
aðrar athugasemdir bárust.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir samhljóða
umrædda breytingartillögu á aðalskipulagi
Biskupstungna sbr. 18. gr. Skipulags- og byggingar-
laga, og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.
5. Laugarás í Biskupstungum.
Tillaga að breytingu aðalskipulags
Biskupstungnahrepps 2000 - 2012 innan þéttbýlis-
uppdráttar Laugaráss. Tillagan nær til austasta hluta
byggðarinnar og gerir ráð fyrir því að athafnasvæði
austan Laugarássbýlisins stækkar um 0,7 ha til suðurs
og að opið svæði til sérstakra nota milli Austurbyggðar
og Lindarbrekku breytist í íbúðarsvæði. Tillagan er
auglýst samhliða tillögu að endurskoðuðu deiliskipu-
lagi á holtinu.
Ein athugasemd barst frá Jens Pétri Jóhannssyni,
dags. 27. desember 2005, þar sem hann mótmælir því
að svæðið austan við götuna Laugarás breytist úr
íbúðabyggð í athafnasvæði í aðalskipulagi, sérstaklega
hvað varðar lóðir númer 2 og 4 í deiliskipulagstil-
lögunni.
Sveitarstjórn er sammála framkomnum athuga-
semdum og staðfestir að lóðir nr. 2 og 4 falli undir
íbúðabyggð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir samhljóða
umrædda breytingartillögu á aðalskipulagi
Biskupstungna sbr. 18. gr. Skipulags- og byggingar-
laga, með fyrirvara um að lóðir 2 og 4 við Laugarás
verði skilgreindar sem íbúðabyggð og felur skipulags-
fulltrúa að vinna málið áfram.
Mat á umhverfisáhrifum Gjábakkavegar.
Tekið fyrir erindi frá Skipulagsstofnun frá 17. janúar
2006, þar sem óskað er eftir umsögn Bláskógabyggðar
um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.
Vegagerðin hefur lagt fram nýja matsskýrslu um
Gjábakkaveg, þar sem lagðir eru fram átta kostir til
athugunar, 5 austan megin og 3 vestan megin.
Sveitarstjórn hefur yfirfarið framkomin gögn og
telur að í nýju umhverfismati komi einungis fram
frekari staðfesting á að leið 3 + 7 sé hentugasta tenging
á milli Laugarvatns og Þingvalla.
Sveitarstjóm Bláskógabyggðar samþykkir því að
halda sér við fyrri samþykkt sína frá 15. október 2004
og felur sveitarstjóra að gefa umsögn um umhverfis-
matið í samræmi við 22. gr. reglugerðar nr. 671/2000
og með rökstuðningi í samræmi við fyrri samþykktir og
umræðu á fundinum.