Litli Bergþór - 01.06.2006, Síða 11
Frá íþróttadeild Umf. Bisk.
Vetrarstarf íþróttadeildar Umf. Bisk. hófst 19.september
og lauk nú um miðjan maí.
Badminton: í haust var byrjað með einn hóp
(5. - 10. bekk) sem æfði badminton, en fljótlega
fjölgaði iðkendum það mikið að nauðsynlegt
reyndist að skipta hópnum í tvennt, svo að
æfingatíminn nýttist sem skyldi. Krakkarnir stóðu
sig með miklum ágætum og stunduðu æfingar af
kappi. Þegar fór að vora fór þó að draga úr
mætingu og var hópurinn þá sameinaður á ný.
Þjálfari í vetur var Karl Pálsson.
Glíma: Boðið var upp á glímu fyrir yngri og
eldri hóp og æfðu þau einu sinni í viku. Glímu-
krakkarnir okkar hafa staðið sig glæsilega á þeim
mótum sem þeir hafa tekið þátt í, nú í vetur. Má
nefna að við eigum m.a. einn fjórðungsmeistara,
Pálma Eirik Gíslason, en hann vann sinn flokk,
14-15 ára, á Fjórðungsglímu Suðurlands sem
fram fór 3. nóvember 2005. Vonandi halda okkar
krakkar áfram á þessari braut. Glímu og fimleika-
sýning var haldin 22. maí og þar sýndu
krakkarnir færni sína. Þjálfari í vetur var Helgi
Kjartansson.
Yngri glímuhópurinn sýnir nokkur brögð.
Fimleikar: Þessi grein var ein sú vinsælasta
hjá okkur í vetur eins og síðastliðin ár, og voru
iðkendur um 50 talsins. Eldri hóparnir æfðu tvis-
var í viku en þeir yngri einu sinni í viku.
Fimleikamaraþon var haldið þann 4. mars til
fjáröflunar fyrir kaup á keppnis-trambólíni.
Krakkarnir söfnuðu áheitum og æfðu síðan fim-
leika frá kl.10 til 18þennandag. Söfnunin gekk
ágætlega og var trambólínið komið í hús nú á
vordögum. Við fengum einnig styrk til kaupanna
úr íþróttasjóði Menntamálaráðuneytisins.
Fimleika- og glímusýning var síðan haldin 22.
maí og sýndu iðkendur afrakstur æfinga vetrarins.
Nokkrar af elstu stelpunum hafa verið duglegar
að hjálpa til á æfingum yngri iðkendanna. Þjálf-
ari í vetur var Freydís Örlygsdóttir.
Knattspyrna: Aukning varð á iðkendafjölda
nú í vetur en u.þ.b. 44 krakkar mættu reglulega á
æfingar. Fjölgunin var mest í miðhópnum og
eru stelpur orðnar um þriðjungur iðkenda þar, og
er það vel. Eins og áður var skipt í þrjá hópa eftir
aldri og æfði hver hópur einu sinni í viku. Eftir
áramót tóku þau þátt í HSK mótinu sem fram fór
í febrúar og mars, og stóð okkar knattspyrnufólk
sig vel. Þjálfari í vetur var Karl Hallgrímsson.
Stelputímar: Stelputímar fóru vel af stað í
haust. Farið var í hinar ýmsu greinar, svo sem
handbolta, blak, badminton o.fl. Vel var mætt í
flesta tíma eða um 12 - 14 stelpur, samheldinn
hópur, frísklegur og skemmtilegur. Hittust
stelpurnar eina kvöldstund á önninni og elduðu
saman og höfðu það huggulegt. Tímarnir voru á
einu sinni í viku.
Áslaug Rut Kristinsdóttir hefur séð um þessar
æfingar í vetur.
11 Litli Bergþór