Litli Bergþór - 01.06.2006, Side 16
Handritið af kvæðinu sem Þórður Kárason orti til
skáldsins og var sungið á samkomunni við Geysi
hefur varðveist. Það mun ekki hafa birst áður.
Þórður var fæddur í Kakkarhjáleigu á
Stokkseyrarhreppi árið 1889. Foreldarar hans voru
Kári Guðmundsson
frá Króki hér í sveit
og Guðrún Jóhannes-
dóttir frá Landkoti á
Álftanesi. Þau voru
fátæk og voru ýmist í
vinnumennsku eða
húsmennsku hér og
hvar, en áttu síðast
heima í litlum bæ,
Efribæ, í Miklaholti.
Þórður fór tveggja
ára til hjónanna í
Auðsholti, Tómasar
Guðbrandssonar og
Guðrúnar Einars-
dóttur, en hún var
ömmusystir hans. Hjá þeim var hann fram á
fullorðinsár. Guðrún var bókelsk en hafði lítinn tíma
til að lesa. Hún komst á að láta strákinn, frænda sinn,
lesa fyrir sig, og var hann látinn lesa upphátt meðan
aðrir voru við tóvinnu.
Þegar hann hafði aldur til fór hann til sjós á
vetrarvertíðum og var lengst í Grindavík. Til eru
svonefndar formannavísur, sem hann orti um formenn-
ina á bátunum þar.
Þorfinnur á Spóastöðum dó árið 1914 og gerðist
Þórður þá ráðsmaður hjá ekkju hans, Steinunni
Egilsdóttur.
Árið 1920 fór hann að búa í Vatnsholti í Grímsnesi
ásamt konu sinni, Þorbjörgu Halldórsdóttur frá
Hrosshaga. Þar bjuggu þau í tvö ár, síðan sex ár á
Miðhúsum hér í sveit, níu ár á Stóra-Fljóti en fóru að
Litla-Fljóti 1939 og bjuggu þar til endadægra sinna
1966 og 1967.
Þóður safnaði töluverðu af bókum, sem hann gaf
Skálholtsstað, og munu þær geymdar í turninum í
Skálholtskirkju, merktar Bókagjöf Þórðar Kárasonar.
Þórður mun snemma hafa farið að yrkja, og er til
töluvert eftir hann. Mest eru það tækifærisvísur og
gamansöm ljóð.
A. K.
Þórður Kárason, sextugur.
Stefán G Stefánsson.
Sungið við Geysi 1917.
Velkominn heim!
Velkominn vinur og bróðir.
Vin þig og son kveður móðir.
Velkomin heim!
Ómamir þeir.
Hlýlega berast með blænum
björtum frá jöklum og sænum
Hvarvetna. Heir!
Vestmanna var,
gjöfin þín gefin oss besta,
Geymda því þökk áttu mesta
bróðir sem bar.
Anda vors sýn
efldir og útsjónir veittir
andvöku nætur er þreyttir
því minnumst þín.
Heill sje þér skáld,
stærstu sem stefndir að myndum.
Stiklar nú sigurs á tindum,
djarfhuga skáld.
Geysir í dag,
gjós nú því gesti skal fagna.
Gleði í hugum að magna,
dvel ei í dag.
Gullfoss í dag.
Ljósgeisla litina þína
láttu í regnboga skína,
dýrðlega í dag.
Syngdu í dag.
Vesturheims gestinum góða,
gnægð þinna töfrandi ljóða.
List þrungið lag.
Hrífandi lag!
Hljómanna dýpri og hærri
hvenær mun gestur oss kærri,
dvelja en í dag!
Þórður Kárason.
Hótel Gullfoss
við Brattholt
býður ylílíur velkomin
Gisting - Veitingar
Gott aðgengi fyrir fatlaða
Heitir pottar
Sími: 486 8979 - Netfang: info@hotelgullfoss.is - Veffang: vwwv.hotelgullfoss.is
Litli Bergþór 16