Litli Bergþór - 01.06.2007, Síða 27

Litli Bergþór - 01.06.2007, Síða 27
við raunverulega notkun svæðisins þar sem nú er tj'aldssvæði, golfvöllur og hús fyrir umsjónarmann svæðisins. Hins vegar er gert ráð fyrir að lítið frístundabyggðarsvæði á bæjartorfu Böðmóðsstaða breytist í landbúnaðarsvæði. Sveitarstjórn samþykkir að auglýsa tillöguna skv. 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram. 5. Tillaga að breytingu aðalskipulags Laugardalshrepps 2000-2012; Lækjarhvammur. Lögð fram að nýju tillaga að breytingu á aðalskipulagi Laugardals 2000-2012 í landi Lækjarhvamms. í breytingunni felst að 90 ha svæði úr landi Lækjarhvamms breytist úr landbúnaðarsvæði í svæði fyrir frístundabyggð. Tillagan var auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi hluta svæðisins frá 31. ágúst til 28. september 2006 og var frestur til athugasemda til 12. október 2006. Fjögur athugasemdarbréf bárust á kynningartíma auk þess sem fyrir liggja umsagnir frá Umhverfisstofnun, Fornleifavernd ríkisins og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. Tillagan var samþykkt í sveitarstjórn 7. nóvember 2006 og aftur þann 9. janúar 2007. Skipulagsstofnun hefur fengið málið jafn oft til afgreiðslu og í bæði skiptin hefur verið talið að gera þurfi nánar grein fyrir afstöðu sveitarstjórnar til umsagnar Umhverfisstofnunar. Nú liggur fyrir endurskoðuð breytingartillaga þar sem nánar er gerð grein fyrir hvernig komið verður til móts við athugasemdir Umhverfisstofnunar, s.s. að ekki verði heimilt að skerða votlendi á svæðinu og að þéttleiki svæðisins verði í samræmi við aðliggjandi svæði. Að auki hefur nýju brunnsvæði verið bætt við ofan svæðisins. Til frekari skýringar liggur fyrir endurskoðuð tillaga að deiliskipulagi svæðisins sem felur m.a. í sér að lóðum hefur fækkað um 25%, úr 60 í 46, tekið er fram að ekki sé heimilt að grafa skurði meðfram vegum til að ræsa fram landið, auk þess sem lega vega innan svæðisins hefur breyst. Fyrir liggja athugasemdir sem bárust á kynningartíma auk mótmæla sem bárust sveitarstjórn síðar. Þó svo að flestar athugasemdirnar eigi við útfærslu deiliskipulags. Auk fyrrgreindra gagna liggja fyrir drög, dags. 22. maí 2007, að umsögn um innkomnar athugasemdir. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða skv. 18. gr. Skipulags- og byggingarlaga fyrirliggjandi breytingu á aðalskipulagi Laugardalshrepps 2000-2012, með tilvísun í fyrirliggjandi umsagnir um innkomnar athugasemdir, og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram. Urskurður umhverfisráðherra vegna kæru Péturs M. Jónassonar vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum vegna Gjábakkavegar. Lagður fram úrskurður umhverfisráðherra vegna kæru Péturs M. Jónassonar vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum vegna Gjábakkavegar. I úrskurði ráðherra kemur fram að úrskurður Skipulagsstofnunar er staðfestur með skilyrðum. Skilyrt er að Vegagerðin láti gera mælingar á ákomu loftaðborinnar köfnunarefnismengunar áður en framkvæmdir hefjast og í a.m.k. 5 ár eftir að framkvæmdum líkur og gera samanburð við aðrar mælingar sem gerðar hafa verið á svæðinu. Vegagerðinni ber að hafa samráð við Umhverfisstofnun um mælingarnar og mat á þeim. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar fagnar úrskurði umhverfisráðherra og hvetur Vegagerðina til að hefja sem allra fyrst undirbúning að framkvæmdum við Gjábakkaveg. Samþvkkt fvrir búfjárhald í Bláskógabvggð. Lögð fram drög að samþykkt fyrir búfjárhald í Bláskógabyggð, sem hefur tekið breytingum í samræmi við síðustu umræðu um samþykktina í sveitarstjórn. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að leita eftir staðfestingu landbúnaðarráðuneytisins á samþykktinni eins og hún liggur fyrir. Tillaga að breytingu á samþykktum Bláskógabyggðar (fyrri umræða). Lögð fram tillaga að breytingu á samþykktum um stjórn og fundarsköp fyrir Bláskógabyggð. Um er að ræða breytingu á 34. gr. samþykktanna, ný 9. gr í A- lið og breytt 16. gr. í B-lið. Ný 9. gr. A-liðar hljóði svo: “9. Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands. Einn fulltrúi og einn til vara.” Breytt 16. gr. B-liðar hljóði svo: “16. Sameiginleg byggingarnefnd uppsveita Arnessýslu. Sameiginleg byggingarnefnd er með Grímsnes- og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi. Skipa skal einn aðalmann og einn til vara.” Framlögð tillaga vísað til síðari umræðu í sveitarstjórn, sem verður á næsta fundi sveitarstjórnar. Innsent erindi: Bréf frá Skálholtskórnum, dags. 26. aprfl 2007. Lagt fram bréf frá Skálholtskórnum, dags. 26. apríl 2007, þar sem stjórn kórsins óskar eftir aðgengi að húsnæði Grunnskóla Bláskógabyggðar í Reykholti til söngæfinga. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela oddvita að ræða við málsaðila og kanna hvort finna megi lausn þessa máls. 27 Litli Bergþór

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.