Litli Bergþór - 01.12.2010, Blaðsíða 36

Litli Bergþór - 01.12.2010, Blaðsíða 36
stillt upp kojum í miðrýmið. Ég man mig hafa efri koju úti við glugga á millivegg á milli svefnskálanna. Kennsla fór fram í stofunum á efri hæðinni. Þar var skipt í stofur eftir aldri og voru nokkrir árgangar saman í bekk. Gangurinn var notaður sem íþróttasalur og þar stunduðum við leikfimi undir handleiðslu Þóris á Geysi, hvernig það var hægt veit ég ekki í dag. Fyrir örfáum árum kom ég í skólann minn aftur og leitaði lengi að stóra íþróttaganginum hvar við sprikluðum og stunduðum Möllersæfingar undir handleiðslu Þóris. Þeir kennarar aðrir en þeir sem áður eru nefndir og sem ég man eftir að væru við kennslu þann tíma sem ég var í skólanum voru: Þuríður í Vegatungu, Arnór á Bóli ásamt frú Önnu Magnúsdóttur prestsfrú. Síðar kom að skólanum nýr skólastjóri, Þórarinn Magnús- son, einhentur jaxl úr Vestmannaeyjum, hann kom með fjölskyldu og við það breyttist margt í öllu skólastarfi. Kona Þórarins tók að sér mötuneytið og krakkarnir gengu í skólann með okkur, með þeim komu nýjir straumar og nýjar kennsluaðferðir. Með Þórarni kom að skólanum, Sigurður Agústsson frá Birtingarholti, sem kennari og kenndi hann í all mörg ár, bæði lesgreinar og smíðar auk þess sem á hans tíma blómstraði tónlistarlíf við skólann. Einn var sá siður, eftirminnilegur, sem runninn var undan rifjum presthjónanna á Torfastöðum en það var uppsetning helgileiks fyrir hver jól þar sem jólaguðspjallið var fært í leikbúning og söng. Var það flutt við aðventumessu öll þau ár sem ég var í skólanum í Reykholti, fyrst á Torfastöðum og síðan í Skálholti eftir að kirkjan þar varð til. í þennan helgileik völdust allir sem gátu og vildu syngja og voru orðnir eldri en átta ára. Nokkur hlutverk voru stærri og eftirsóknarverðari en önnur, þar voru María og Jósep hátt skrifuð en æðsta hlutverkið var að vera Gabríel erkiengill sem, „Sjá ég boða yður mikinn fögnuð“, bar höfuð og herðar yfir aðra í þessu mikla verki. Tvisvar náði ég því að vera erkiengillinn sjálfur, einu sinni Jósep, einu sinni fjárhirðir en oftast var ég í englakórnum sem söng „Hósíanna“ með kertavax rennandi úr kerti, sem haldið var á, niður á handarbakið. Æfingar stóðu frá miðjum nóvember þar til sýnt var, sem var einhvern sunnudag í aðventu. Mikill hátíðleiki fylgdi þessari stund. Leikarar og kór gengu inn kirkjugólfið í tvöfaldri röð, syngjandi og foreldrar og ættingjar fylltu kirkjuna í þögulli aðdáun á afkvæmum sínum sem voru mörg hver sveitt í lófum og með svitadropa á enni undir vatnsgreiddu hári. Allir klæddir í hvíta fermingarkirtla eða viðeigandi búning annan. Leikir og strákapör í skólanum í Reykholti var engin sérstök skólalóð og var því leiksvæði okkar krakkanna talsvert víðfemt. Nemendurnir: Þorsteinn Þórarinsson Fellskoti og Gunnar Sverrisson fremst, Pétur Hjaltason og Páll Skúlason Laugarási í miðju og Sveinn Sæland og Þórarinn Grímsson (Doddi læknisins '52) aftast. Gatan milli gamla og nýja skólans var mikið notuð í frímínútum til leikja, þar var farið í „brennó“, hoppaður parís og fleira skemmtilegt gert. Yfirleitt voru löngu frímínúturnar nýttar í brenni- bolta og var þá skipt í tvö lið og fengu allir að vera með, háir sem lágir. Brekkan fyrir ofan skólana og framan var, þegar snjór var yfir, nýtt til þess að renna sér með þeim tiltæka búnaði sem hver og einn gat fundið sér. Eftir skóla á daginn færðust leikar út fyrir svæðið og var þá oft farið upp í kletta, þar höfðu menn virki og börðust með atgangi miklum með sverðum og atgeirum um allt holt. Við höfðum gamla herbragga sem geymslu fyrir vopn og verjur og höfðum lið hugprúðra riddara, indjána og annarra þeirra er börðust með handvopnum. Oft voru mörg lið samtímis á orrustuvellinum sem oftast var norðan í klettunum, þar innanum stóra steina sem stóðu lausir frá meginklettunum og skópu möguleika á virkjum og þess háttar. Aldrei urðu menn verulega sárir þó stundum blæddi úr vör eða haus og hruflaðar hendur eða hné væru örlítið til ama og þó svo stundum féllu tár vegna stundarverkja mættu menn galvaskir aftur næsta dag, eins og fallnar hetjur úr Valhöll, og hófu vopnaskak sem aldrei fyrr. Sunnanvert á holtinu fram undir ærhúsum Kristins á Brautarhóli var oft farið í leiki, þar voru leiknir útilegumannaleikur, fallin spýtan og fleiri hópleikir í ævintýralandslagi með gjótum og skjólum sem hentuðu vel til slíkra leikja. Fyrir nokkrum árum fór ég um þetta svæði allt í leit að æsku minni og fann fátt. Þannig finnst mér sem klettarnir hafi sigið svo að lítið stendur uppúr, gildir það sama um björgin hvar við byggðum virki og vörðumst. Braggarnir eru horfnir með öllu og búið að byggja á hluta þess svæðis þar sem útilegumenn léku lausum hala með sitt hyski. Mig undrar að við fengjum að leika þarna óáreitt og án eftirlits, frá kennslulokum og fram að kvöldmat, og að aldrei skildu verða nein slys sem orð er á gerandi. Litli-Bergþór 36

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.