Litli Bergþór - 01.07.2011, Blaðsíða 13
Séð heim að Litla-Fljóti upp úr miðri 20. öldinni.
kvæmda við Þjórsá og Hellisheiðarveg og atvinnu-
bílstjóri, alls 30 manns.
1 Reykholti eru átta gróðurhúsastöðvar, 8240 m2 að
stærð. Þar býr skólastjóri barna- og unglingaskólans,
stöðvarstjóri pósts og síma og vélaviðgerðarmaður,
alls 57 manns. Þar er félagsheimilið Aratunga, sem
ber nafn Ara fróða og sveitarinnar, sem upphaflega
hét Tungur, og það nafn oftast notað í daglegu tali
enn í dag. Félagsheimilið vildum við síst missa. Ár
eftir ár er komið saman þar til ýmsra félagslegra
menningarstarfa eigi sjaldnar en annan hvern dag.
1670 m2 gróðurhús skiptast svo milli fimm aðila
annars staðar í sveitinni, aðallega í Haukadal.
45 heimili búa við upphitun íbúðarhúsa af jarðhita
og njóta þeirra gæða 207 manns eða 43% af íbúum
sveitarinnar. Hreppsfélagið gekkst fyrir því, að
Orkustofnunin rannsakaði á s.l. sumri, hvernig
hitaæðar lægju um sveitina. Sú
rannsókn sýndi jákvæðan árangur
nokkuð víða, en fullnaðarskýrsla um
þessa rannsókn er ekki komin enn. Það
lá ljóst fyrir allra augum, áður en þessi
vísindalega rannsókn var gerð, að
aðalhitaæð sveitarinnar liggur beint frá
Laugarási upp að Geysi og önnur frá
Þorlákshver í Skálholti, upp með
Brúará upp undir miðja sveit. Það eru
því miklar líkur fyrir því, að á þessum
áratug, sem nú er að byrja, verði meiri
hluti sveitarinnar aðnjótandi þessara
miklu jarðargæða. í þessu sambandi er
vert að segja frá því, að nú er nokkur
hluti hins gamla, góða Þorlákshvers,
kominn heim á Skálholtsstað og mun
fyrir jól flæða með allt sitt mikla
hitaveldi um öll hús staðarins. Fyrir
hálfum öðrum áratug keyptu framsýnir
forsvarsmenn staðarins efni í hitalögn fyrir staðinn.
Þá komu aðrir menn til skjalanna, sem voru svo
hagsýnir, að þeir létu efnið liggja ónotað í fimm til
sex ár, seldu það síðan fyrir lítið verð, vegna þess, að
þeir töldu það betra og þægilegra að kaupa olíu af
Rússum austan fyrir Svartahaf. Þessi ráðsmennska
kostaði staðinn mikið fé, en nú er þetta nauðsynjamál
leyst á réttan og farsælan hátt fyrir alla framtíð.
Mikið vandamál ber landsbyggðinni að höndum
nú, einkum þeim landshlutum, sem lengst liggja frá
Faxaflóa fjölmenninu, en það er læknaleysið. Landið
helzt ekki í byggð, þar sem heilsugæzlu vantar með
öllu.
Norðmenn skilja þetta. Þeir þrýsta ungum læknum
norður í nyrztu héruð Noregs með ýmsum ráðum.
Fólk unir ekki við álíka heilsugæzluleysi nú og var
fyrir 100 árum.
Ketilbjörn ehf.
Vinnuvélaverktaki
Syðri-Reykjum
Grímur Þór - Sími 892 3444
13 Litli-Bergþór