Litli Bergþór - 01.12.2011, Page 19
var gist í tjöldum í Ás-
garði í Dölum, þaðan var
farið í Hundadal í Mið-
Dölum, þaðan í Indriða-
staði í Skorradal, í
Grafardal og niður
snarbrattar síldarmanna-
götunar, yfir Leggjabrjót
á Þingvöll og heim.
Með Sólrúnu dóttur
Konurnar sex: Erna, Sigrún Ásta Bjarnadóttir frá Reykjum á Skeiöum, Sigrún í
Fossnesi, Guörún (Gýgja) Ingvarsdóttir Reykjum á Skeiðum, Magga á Iðu og Kristín á
Hlemmiskeiði.
okkar er eftirminnilegust
12 daga hestaferð sem
við fórum um Þingeyja-
sýslu sumarið 2006 með
Magga og Lilju á Ár-
bakka og fleira fólki.
Hestarnir voru keyrðir til
Akureyrar og þaðan riðið
yfir í Fnjóskadal og yfir í
Bárðardal, suður í Réttar-
torfu, sem er gangnakofi
Bárðdælinga suður við
Odáðahraun. Þaðan rið-
um við með Odáða-
hrauni, eða Suðurárhrauni
eins og það heitir þar, í
Suðurárbotna, þar sem
Suðuráin kemur undan hrauninu, en hún rennur
nokkru norðar í Skjálfandafljót. Mig hafði lengi
langað til að sjá þennan fallega stað. Síðan riðum við
Erna og Guðjón í fríi á Kanarí, en þangað fóru þau á
hverjum vetri í ein 8-10 ár.
norður að Stöng við Mývatn, þar sem frændfólk
Stínu á Efri-Reykjum býr, um Laxárdal að
Þeistareykjum og að Lyngási í Kelduhverfi, þar sem
við gistum í tvær nætur áður en við snérum aftur
vestur á bóginn. Það er rherkilegt hvað landið þarna
er allt sprungið, bóndinn að Hóli í Kelduhverfi
sagðist missa fleira fé í holur í hrauninu en úr
riðuveiki. Yið riðum síðan vestur um Reykjaheiði,
Hvammsheiði, Múlaheiði, Fljótsheiði og að
Sigríðarstöðum í Ljósavatnsskarði og til Akureyrar,
þar sem ferðin endaði. Við höfum farið einar fjórar
ferðir með Magga og Lilju á Árbakka norður í land
og víðar. Lilja er svo dugleg að útbúa fallegar bækur
með myndum og ferðalýsingum, sem skemmtilegt er
að eiga”. Og Erna sýnir blaðamanni glæsilegar,
innbundnar bækur með fallegum myndum af hestum
og mönnum og landslagi og ferðalýsingum frá
árunum 2006 og 2007.
„Það má líka minnast á ferðir með
Landaferðafélaginu, en í því er fólk m.a. úr
Laugardal, Reykjavík og víðar.
Ferðirnar eru orðnar svo margar að það væri efni í
heila bók að segja frá þeim. En við höfum alltaf haft
yndi af hestum og þeir hafa togað í okkur“. „Þú varst
alltaf svo dugleg að drífa þig“ sagði Magga á Iðu
einhvern tímann við mig, og það er kannski rétt“,
segir Erna brosandi. „Já, flökkueðlið hefur dregið
mann víða”, bætir Guðjón við.
Og með þeim orðum kveðjum við þessi brosmildu
og lífsglöðu hjón, sem kunna það sem margir kunna
ekki, að gera það sem þau langar til og njóta þess.
Þökk fyrir yndislegar móttökur og veitingar.
Geirþrúður Sighvatsdóttir
19 Litli-Bergþór