Litli Bergþór - 01.12.2011, Síða 25
Það var dálítið Aratunguhlé hjá mér frá 1975-9, en
þá kom ég aftur og hóf störf við Reykholtsskóla, sem
þá hét svo. Þar fengum við fD (frú Dröfn), með tvo
unga syni, nýbyggt einbýlishús til afnota, sem
einmitt stóð í næsta nágrenni við Aratungu, ætli það
heiti ekki Miðholt 3.
Ég var ekki lengur sá sem skellti mér á sveitaball,
heldur kom ég nú í auknum mæli að þessum sam-
komum sem starfsmaður, enda sogaðist ég fljótlega
inn í starf Ungmennafélagsins. Þarna fékk ég að líta
skemmtanalífið frá talsvert öðrum sjónarhóli, og þar
var auðvitað margt gott og vont, eins og gengur. Auk
þess var ég í þannig starfi að ekki þótti gott að vera
of áberandi í skemmtanalífinu. Ég lærði það smám
saman.
Það er eins og mig minni að þegar þarna var komið
hafi lögreglan ekki komið lengur að gæslunni, heldur
hafi húsið sjálft útvegað fólk í þetta. Þetta var ekki
síst vegna þess hver dýrt var orðið að fá lögregluna.
í gula húsinu þar sem við bjuggum urðum við nú
ekkert sérlega mikið vör við sveitaböllin fyrir utan
bassadrunurnar - dúmm, dúmm, dúmm - og síðan ef
maður leit út á bjartri sumarnótt og leit ungt fólk vera
að dunda sér (það var gerður íslenskur texti við
ákveðið lag, sem lýsir því hvað þarna fór stundum
fram:)) á bak við kartöflukofann sem stóð við heim-
reiðina að skólastjórabústaðnum.
Hlutverk Aratungu er mjög breytt frá því var í
upphafi. Það vita auðvitað allir að sveitaböllin eru
horfin og koma varla til baka, og menn geta deilt um
hvernig þróun það er. Enn eru haldnar árshátíðir og
réttaball, barnaball á jólum og þorrablót og eitthvað
fleira svona fast, auk funda og annars sifks. Þá er
skólamötuneytið þarna enn sem fyrr, en þar er heldur
betur vel mannað í eldamennskunni nú um stundir.
Þar sem áður var símstöð og íbúð húsvarðar, eru nú
skrifstofur sveitarfélagsins, þar sem áður var þykkt
rautt teppi í anddyrinu, eru komnar gráleitar flísar,
þar sem áður var sjoppan, þar sem maður pantaði í
gegnum gat á glervegg, svona eins og í bönkum, þar
er komið salerni fyrir fatlaða, þar sem áður var öl-
salan (öl og gosdrykkir var ekki selt á sama stað og
sælgætið) er nú uppþvottavél.
Allt þróast og breytist þar með talið svona félags-
heimili til sveita. Það eru ýmsir möguleikar í þessu
húsi sjálfsagt. Vandinn er að finna þá starfsemi sem
gefur það af sér sem til þarf til viðhalds og endur-
bóta.
Páll M. Skúlason
Öáám áeétu áeÁci
um yt&öiley jól
oy frviteM á famaucU áni.
'pöMuat cM cptt á dnmu
en að ícba
Raflagnir - Viðgerðir
Tek að mér nýlagnir, hönnun raflagna og alla Sumarbústaðaeigendur athugið að ég sæki
almenna rafvirkjavinnu ásamt tækjaviðgerðum. um öll leyfi fyrir heimtaug að sumarhúsum
Efnissala og varahlutaþjónusta. , og lagningu raflagna.
Fljót og góð vinna. Q'leðílegjél
Jens PéturJóhannsson
LÖGGILTUR RAFVERKTAKI
GSM 899 9544
Heimasími 486 8845
Verkstæði sími 486 8984
GSM 893 7101
25 Litli-Bergþór