Litli Bergþór - 01.12.2011, Side 26
Irm *til fjalla
Li-tið við á Gullfosskaffi hjá þeim Elfu 3jörk
Magnúsdó-ttur og Svavari Njaróasyni
V/á Gullfoss, eina af okkar helstu ferðamannaperl-
um, hefur löngum verið rekin greiðasala, þó með
hléum. Hjónin Svavar Njarðarson og Elfa Björk
Magnúsdóttir hafa liaft umsjón með rekstri ferða-
þjónustu við GuIIfoss allt fró árinu 1994 og hefur
öll aðstaða breyst verulega til hins betra á þessum
árum. Nýjustu breytingar voru gerðar á húsnœði
GuIIfosskaffis fyrri part ársins þegar byggt var við
skálann um 100 fermetra verslunarrými og þótti
blaðamanni Litla-Bergþórs upplagt að taka þau
hjónin tali í tilefni af því.
Svavar, sem fæddist á Selfossi 1971, er sonur
Njarðar Jónssonar og Guðrúnar Láru Ágústsdóttur
sem hafa verið ábúendur í Brattholti síðan 1978.
Hann er næstyngstur fjögurra sona þeirra en bræður
hans eru þeir: Jón Harrý, Kristján, og Sigurjón.
Einnig á hann hálfsysturina, Lindu Margréti sem
faðir hans átti áður en hann gifti sig. Þegar Svavar
fæddist bjuggu foreldrar hans á Kjartansstöðum í
Hraungerðishreppi, árið 1978 fluttust þau í Brattholt
og hóf Svavar skólagöngu sína í barnaskólanum í
Reykholti og síðan á Laugarvatn þaðan sem hann
útskrifaðist með stúdentspróf. Haustið 1991 settist
hann á skólabekk í Samvinnuháskólanum á Bifröst
eins og skólinn hét þá, nú heitir hann Háskólinn á
Bifröst. Þaðan útskrifaðist hann sem rekstrarfræð-
ingurvorið 1994.
Elfa Björk Magnúsdóttur er fædd á ísafirði árið
1972. Hún er dóttir Magnúsar Bjarna Guðmundsson-
ar, múrara, frá Hnífsdal og Ástdísar Kristjánsdóttur,
verslunareiganda og handverkskonu sem einnig er
ættuð að vestan en er fædd fyrir norðan og er líka
ættuð úr Skagafirðinum og Eyjafirðinum.
Elfa Björk er töluvert rík af systkinum. Faðir
hennar átti sex börn áður en hann kynntist móður
hennar, það eru: Olöf Sigríður, Magnús, Jónas, María
Kolbrún, Gunnar og Þröstur. Saman áttu þau Magnús
og Ástdís svo fjögur börn sem eru: Elfa Björk, Birta
Mjöll, Guðmundur ívar og yngst er Helga ísfold.
Fyrir átti Ástdís Jóhann Kristján Birgisson. Foreldrar
Elfu bjuggu í Bolungarvík þegar hún fæddist en
fluttu tveimur árum seinna suður á bóginn. Segist
hún hafa búið einhvern tíma í flestum landshlutum
Svavar og Elfa fyrir framan afgreiðsluborðið á Gullfosskaffi, það er mun algengara að sjá þau fyrir aftan það.
Litli-Bergþór 26