Litli Bergþór - 01.12.2011, Page 27
og að trúlega sé hún búin að slá persónulegt met í
lengd búsetu í Brattholti, enda kunni hún vel við sig
þar. Framhaldsskólann tók hún líka í fleirum en ein-
um skóla en útskrifaðist frá Fjölbrautaskóla Suður-
nesja. Eftir það lá leið hennar síðan í Samvinnu-
háskólann á Bifröst og útskrifaðist hún sem rekstrar-
fræðingur vorið 1994.
Það var sem sagt á Bifröst sem leiðir þeirra Svav-
ars og Elfu lágu saman og í dag eiga þau saman þrjú
börn en þau eru: Óðinn, f. 1997, Sölvi f. 2001 og
Ástdís Lára f. 2005.
Sumarið 1994 reistu Svavar og Njörður, faðir hans,
sölutjald við Gullfoss. Þeir útveguðu sér grænt
hermannatjald á Hellu, settu það á trépall sem þeir
útbjuggu við nýtt bílastæði fyrir ofan Gullfoss.
Brjáluð hugmynd, en virkaði strax vel á ferðmenn.
Þar var Svavar upptekinn allt sumarið 1994 ásamt
því að taka þátt í hefðbundnum búskap með bróður
sínum, Jóni, en á þeim tíma var Jón með rúllubagga-
þjónustu og fór víða um sveitina og aðstoðaði bænd-
ur við heyskapinn. Var þá oft unnið allan sólarhring-
inn.
Fyrsta skref Svavars og Elfu á viðskiptabrautinni
saman var að kaupa söluturninn Örnólf við Snorra-
braut í Reykjavík, þau ráku hann um nokkurt skeið
og reyndist það góður skóli fyrir framhaldið er farið
var að byggja upp við Gullfoss fyrir alvöru.
Sigurjón bróðir Svavars hóf störf hjá fyrirtækinu
strax fyrsta árið og var lykilmaður hjá því um langt
skeið, hann stundar núna lögfræðinám á Akureyri.
Margir góðir starfsmenn hafa komið að fyrirtækinu í
gegnum árin og vilja Svavar og Elfa sérstaklega
þakka Ástdísi móður Elfu fyrir góða vinnu og hjálp.
Kristján Eggertsson, afi Elfu, hafði yfirumsjón með
allri smíðavinnu fyrstu árin og vann ómetanlegt starf
við að koma húsum upp á hagkvæman hátt.
Það var mikil barátta, sem tók nokkur ár, að fá í
gegn nýtt skipulagssvæði við Gullfoss þar sem gert
var ráð fyrir þjónustu við ferðamenn. Njörður og
Lára voru þar í eldlínunni og mættu þar töluverðri
mótspymu frá ýmsum opinberum aðilum, en þetta
hafðist allt í gegn fyrir rest. Njörður og Lára unnu þar
mikið frumkvöðlastarf sem Elfa og Svavar njóta góðs
af í dag og eru þakklát fyrir. Njörður, Lára og Jón
reka núna Hótel Gullfoss sem gengur vel.
Sumarið 1997 urðu breytingar. Þá settu þau tjaldið
upp en í þetta skiptið stóð það bara í einn mánuð
vegna þess að þá voru þau búin að kaupa og koma
fyrir litlu 50 fermetra húsi, var þá fyrirtækið loks
komi undir þak eftir volkið í tjaldinu. í minningunni
var eiginlega alltaf rok og rigning þessi sumur og
tjaldið oft við það að fjúka, annað en núna þar sem
oft vantar meiri rigningu á sumrin og það er
einfaldlega vatnsskortur.
Síðan hefur leiðin bara legið uppá við.
Aldamótaárið var komið að því að stækka meira og
þá byggðu þau fyrsta skálann sem var um 150
fermetrar. Þá voru komin sæti fyrir um 30 manns og
þau seldu kaffi, tertur og þess háttar, auk minjagripa.
Ári seinna var byggð starfsmannaíbúð við þann
27 Litli-Bergþór