Litli Bergþór - 01.12.2011, Side 28
skála. Árið 2004 bættu þau við um 300 fermetrum,
sem bauð uppá gríðarlega breytingu á rekstrinum.
Þau hófu að bera fram íslenska kjötsúpu og fólk gat
farið að fá heitan mat.
Starfsmannahúsi var bætt við árið 2006 og útipalli
sem snýr niður að fossinum. Yfir hann tjölduðu þau
og Iögðu þar á borð fyrir matargesti á álagstímum.
Tjaldið á pallinum var uppi allt sumarið og var yfir-
leitt ekki tekið niður fyrr en í september en í ágúst
2009 gerði ægilegan hvell og tjaldið fauk og gjör-
eyðilagðist. Þá lá fyrir að annað hvort yrði að setja
upp annað tjald eða byggja yfir pallinn. Úr varð að
ráðist var í enn eina stækkuna og byggður 200
fermetra salur með 150 sætum.
í dag eru sætin orðin 350 og ferðamönnum fjölgar
stöðugt. Fjöldi starfsmanna hjá fyrirtækinu er árstíða-
bundinn en að meðaltali eru 8 til 20 manns starfandi.
Veitingarnar hjá þeim eru frekar fljótlegar og einfald-
ar: kjötsúpa, salat, tertur, alls konar samlokur,
baguett og beyglur. Einnig er hægt að fá ýmsa fisk-
og kjötrétti pantaða af matseðli.
Reksturinn byggist mikið á skipulögðum hópferð-
um, mikil tímapressa er á slíkum hópum og byggir
allt skipulag og þjónusta á því að afgreiða þessa hópa
eins hratt og hægt er til að fyrirtækið verði ekki
flöskuháls í ferlinu.
Samkeppnin er mikil á þessum markaði og geta
ferðamenn í dag valið um margs konar þjónustu á
Gullna Hringnum sem er gott til að álagið á svæðinu
dreifist víðar.
Árið 2003 fluttu Svavar og Elfa alfarið í Brattholt
eftir að hafa keyrt á milli Gullfoss og Reykjavíkur í
nokkur ár. Þau byggðu sér heilsársbústað og bjuggu í
honum í sex ár. Síðan fluttu þau í einbýlishús sem
þau byggðu árið 2009. Svavar segir að það sé sér
minnisstætt þegar þau hjónin voru að negla þakið á
sumarbústaðinn í blíðskaparveðri um vorið að þau
tóku ákvörðun um að hér skildu þau búa í
framtíðinni. Á þeim tímapunkti áttu þau parhús og
voru með kaffihúsarekstur í Spönginni í Grafarvogi.
Ákveðið var að selja allt í Reykjavík og nýta
fjármuni sem losnuðu til að stækka Gullfosskaffi.
Það má segja að þau séu búin að vera að byggja og
framkvæma stanslaust síðan þau byrjuðu saman: í
Reykjavík, í Brattholti og upp á Gullfossi. Það eru
sennilega samtals um 2000 fermetrar sem þau hafa
byggt, þegar allt er talið saman.
Vinnudagurinn er langur, allar ákvarðanir eru
teknar við eldhúsborðið heima og þau sjá líka sjálf
um allt skriftstofuhald og umsýslu sem viðkemur
fyrirtækinu. Verkefnin eru margs konar, mesta áskor-
unin hefur verið að byggja upp allar grunnstoðir sem
þarf til að svona fyrirtæki virki, þau hafa þurft að sjá
sjálf um alla fráveitu, vatnsveitu og að gera bíla-
stæði. Eins hafa þau þurft að berjast fyrir nægu raf-
magni og góðu neti og símasambandi. Hvorki sveit-
arfélag eða ríkið kemur neitt nálægt þessum rekstri
og hafa þau ekki fengið neina styrki til að bygga
þetta fyrirtæki upp. „Það hefur verið erfitt en þegar
upp er staðið þá er þetta best svona”, segir Svavar.
Fyrirtækið er í dag sterkt og skuldlaust.
Elfa sá kannski aldrei beinlínis fyrir sér að hún
myndi búa í sveit, heldur æxlaðist Iífið bara svona.
Henni finnst hún samt ekki finna neitt sérstaklega
fyrir því að vera í sveit. Það er svo mikið að gera hjá
henni að hún hefur lítinn tíma til að velta þessu neitt
sérstaklega fyrir sér. Áhugamálin þeirra verða
nokkuð útundan vegna vinnuálags og þegar þau eru
ekki upptekin í vinnu þá veitir fjölskyldunni og
heimilinu ekki af tíma þeirra. Fjölskyldan skreppur
þó á skíði þegar gott færi gefst og börnin nota stöku
sinnum hesta sem eru í Brattholti. Báðir bræðurnir
æfa fótbolta með Selfossi og er heilmikið stúss í
kringum það að koma þeim á æfingar og leiki þar
sem fjarlægðir eru miklar.
Þau eru sammála um að samgöngur í sveitinni séu
góðar og þó að vegalengdir séu miklar þá láta þau
það ekki aftra sér. Það eru t.d. um 30 km frá
Brattholti í Reykholt þar sem skóli og leikskóli eru
og um 70 km ef fara þarf á Selfoss. Þau hafa síðustu
ár keyrt um 120 kílómetra á dag bara í og úr
leikskóla, sem er eins og önnur leiðin til Reykjavíkur.
„En það er svo skemmtilegt með þessa sveit hérna”
segir Elfa „að hún er svo ofboðslega falleg að ég fæ
aldrei leið á að keyra um hana”.
Þau eru ekkert á förum að eigin sögn, kunna vel
við sig í þessu starfi og það er alltaf opið á Gullfossi,
aldrei lokað einn einasta dag, ekki einu sinni á jóla-
dag. Þau eru ákveðin í að láta fyrirtækið vaxa áfram
með fjölgun ferðamanna og veita áfram góða þjón-
ustu.
Blaðamaöur þakkar Svavari og Elfu fyrir spjallið og
óskarþeim til hamingju með nýju viðbygginguna og
velfarnaðar íframtíðinni.
Svava Theodórsdóttir
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO
Jón kokkur
Jón kokkur eldar pasta.
En því má ekki kasta.
Jón er bara flottur
og hann er ennþá kokkur.
Höf. Rakel Sara Hjaltadóttir 6. bekk
Litli-Bergþór 28