Litli Bergþór - 01.12.2011, Qupperneq 33
ritstjórn eiga og flestar greinarnar. Höfundar flestra
greina í blaðinu eru þau Arnór Karlsson, Drífa Kristj-
ánsdóttir, Geirþrúður Sighvatsdóttir, Páll M. Skúla-
son, Sigríður J. Sigurfinnsdóttir, Sveinn Sæland og
Þorfinnur Þórarinsson, þó margir fleiri komi þar að.
Arnór Karlsson (1935-2009) er tvímælalaust þar
afkastamestur og kemur í skrifum hans fram það sem
hann virðist hafa mestan áhuga á, þ.e.: Afréttarlönd
Biskupstungna - Saga Biskupstungna - Fréttir af
mannlífi, nýjungum og framförum í Biskupstungum.
- Sauðfjárrækt ásamt tilheyrandi fjallferðum og
fjárleitum.
Geirþrúður Sighvatsdóttir: Ferðaðist „umhverfis
jörðina á tveimur árum og mánuði betur“ og segir
hún frá því ferðalagi. - Hún tekur auk þess mörg
skemmtileg viðtöl við sveitungana, bæði við
„innfædda Tungnamenn“ sem og fólk sem er að
setjast að í Tungunum.
Aðrir fjalla um svipað efni.
Eðlilega er starfsemi Ungmennafélagsins einnig
stór þáttur í efni blaðsins.
Ungmennafélag Biskupstungna varð 100 ára árið
2008. Blaðaútgáfa hefur lengst af starfstíma þess
verið stór þáttur af starfsemi félagsins. Fyrstu ára-
tugina hét blaðið Baldur, var handskrifað og lesið
upp á fundum. Fjögur prentuð blöð, Bergþór, komu
útáárunum 1963-1968.
Fyrsta tölublað af Litla-Bergþóri kom út 5. mars
1980 og nær útgáfa þess til dagsins í dag. Komið
hafa út þrjú tölublöð á ári. Fyrst var það fjölritað, en
síðan prentað.
Markmið lyklunar Litla-Bergþórs er að gera
efnisinnihald Litla-Bergþórs aðgengilegt hverjum
þeim sem langar að fræðast um menn og málefni í
Biskupstungum fyrr og nú. Einnig að auðvelda þeim,
sem betur þekkja til, að finna þær upplýsingar og
fróðleik sem vitað er að Litli-Bergþór inniheldur.
Austurey II 8.júní 2011
Helga Jónsdóttir
A ratunga
Það er góður andi og góður matur
og gaman að vera þar.
Félgasheimilið okkar
Aratunga 50 ára.
Höf. Margrél Svanhildur Kristinsdóttir,
6. bekk
Ara-tunga
Jón kokkur eldar mat
Hann er alltaf góður.
I vinnuna hann mætir strax.
Og eldar fyrir alla.
Höf. Þórhildur Lilja Þórarinsdóttir
6. bekk
Gamla góða
Aratunga
Gamla góða Aratunga,
þú ert höfuðstaður Reykholts.
Aratunga er bær sveitunga,
I augum lítils skólapilts.
Sólin skín inn um gluggann,
Og matarilmur breiðist fljótt.
Kokkinn okkar við höfum duggan,
Því maturinn hann kemur skjótt.
Höf. Eva María Larsen, 7. bekk
33 Litli-Bergþór