Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.1986, Blaðsíða 1
FRETT ABREF
ÆTTFRÆÐIFÉLAGSINS
1. tbl. 4. árg. Mars 1986
KYNNING ÆTTFRÆÐIRITA
Ættfræðifélagið var stofnað m.a. til þess að auka kynni milli ættfræðinga.
Tilgangurinn er margþættur én augljós. Ættfræði er ákaflega tímafrek grein.
Ættfræði er mikið nákvæmniverk. Allt varðandi ættfræði verður að vanda.
Vegna þess hve ættfræðirannsókn er tímafrek hefur margsinnis verið bent á
nauðsyn þess að ættfræðingar láti félaga sína vita hvað verið er að rannsaka.
Ættfræði tekur svo mikinn tíma að það er mjög mikil sóun á starfsorku að margir
séu að kanna sama atriði. Þótt enginn sé óskeikull verður að treysta vandvirkni
ættfræðinga. Vafaatriði verður að auðkennast. Villur má aldrei endurtaka ef um
þær er vitað.
Vegna þess sem hér hefur verið drepið á hefur í fréttabréfinu verið getið
um æ fleiri ættfræðirit. Þetta hefur að vísu nokkuð farið eftir því hvað fyrir
augu okkar hefur borið. Það er þó greinilegt að þeim höfundum fjölgar sem fá
umsögn okkar. Sú umfjöllun er að sjálfsögðu ekki tæmandi. Það vita allir og
til þess ætlast heldur enginn.
Stjórn Ættfræðifélagsins vill gera betur í þessum efnum. Félagsmönnum er nú
boðið að koma og kynna ættfræðirit sín þau kvöld sem fundir eru haldnir, réttara
sagt áður en fundir hefjast. A tímanum frá 19:30 til 20:30 eru allir félags-
menn hvattir til að koma til þess að kynna, og selja, verk sín. Eða annarra.
Þá mætti einnig hugsa sér að menn gætu fengið keypt ljósrit, eftir pöntun og
sérstakri aukagreiðslu, aldrei lægri en kr.200, af óútgefnu efni eftir félaga.
Gæti þetta orðið vísir að aiiikiööii fróðleiksmiðlun sem mikil þörf er á.
Stjórnin vonast til að þetta fyrirkomulag mælist vel fyrir. Eftir sem áður
verður fréttabréfið opið fyrir fréttum af ættfræðiritum. Við munum með ánægju
fjalla um allt slíkt efni sem okkur berst.