Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.09.1986, Síða 1

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.09.1986, Síða 1
FRETTABREF ÆTTFRÆÐIFELAGSINS 5.tbl. 4. árg. September 1986 ÆTTFRÆÐIFERÐIN Fyrsta ættfræðiferðin sem Ættfræðifélagið stendur fyrir var farin 19. júlí og þótti takast mjög vel. Farið var víðar en ferðaáætlunin gerði rá$ fyrir, m.a. var stansað á Krossi og Krosskirkja skoðuð, farið var upp að Þingskálum og heilsað upp á Valgeir Sigurðsson og hellar voruð skoðaðir við Ægissíðu. Þrátt fyrir þessa viðbót stóðst tímaáætlunin nokkurn veginn. Komið var til Reykjavíkur um kl. 19:30. Veður var milt og gott, farkostur var góður. Leiðsögumennirnir Jón Gíslason, Sigurður Sigurðarson og Oskar Qlafsson, Alftarhóli, stóðu sig með prýði. Þeir fléttuðu saman ættfræði, staðfræði og sögu á skemmtilegan hátt. Auk þeirra lögðu þátttakendur í ferðinni orð I belg. Þegar er farið að ræða um næstu ferð. FELAGATALIÐ Félagar eru minntir á, að frestur til að skila viðbótum og breytingum í nýja félagatalið rennur út 25. þ.m. Þegar hafa margir sent inn upplýsingar um áhuga- svið og útgáfur. Því fleiri sem svara þeim mun gagnlegra verður félagatalið. FYRIRSPURN Er einhver sem veit um uppruna og ætt Teits Þórðarsonar sem skv. mannt. 1801, bls. 403, er sagður fátækur bóndi að Mosfelli í Mosfellssveit. F. 1756. E.Uv. hét býli hans Hitta. - Kona hans var Astríður, f.1752, dóttir Ingimundar 1 Byggðarhorni, Magnússonar af Arnesingaættum. Dætur 1801: Matthildur,4, og Kristín, 7, sem síðar varð kona Magnúsar Jónssonar b. í V-Skaft., f. 1805. - I Vestur- Skaftfellingum Björns Magnússonar, 111,36, er Kristín sögð f. 1792 dóttir Teits Þórðarsonar frá Seli á Seltjarnarnesi. Eg yrði þakklátur fyrir upplýsingar. Gunnar B. Guðmundsson, Freyvangi 15, Pósthólf 77, 850 HELLA. TÖLVUR 0G ÆTTFRÆÐI Við fáum æ fleiri fyrirspurnir um ættfræðiforrit enda fer þeim fjölgandi sem taka tölvur í notkun til þess að geyma í upplýsingar. Haraldur Guðbergsson, Grýtubakka 4, sími 76916, hefur mikinn áhuga að komast I samband við þá félaga sem til þessara mála þekkja.

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.