Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.1986, Page 1
rnrn
FRETTABREF
rFRÆÐIFÉLAGSINS
6. tbl. 4. árg. Október 1986
ERINDI INDRIÐA
A seinasta félagsfundi flutti hinn kunni ættfræðingur Indriði Indriðason erindi
um gildi ættfræðirannsókna. Sem við var að búast var erindið hið skemmtilegasta.
enda er Indriði fjölfróður og athugull ættfræðingur. Það fer ekkert á milli mála
að ættfræði veitir þeim, sem hana stunda, mikla og sérstaka innsýn í mannlífið.
NY EYÐUBLÖÐ
Til þess að auðvelda ættfræðingum að halda saman fróðleik sínum hefur Arngrímur
Sigurðsson hannað þrjú ný eyðublöð. Fyrsta blaðið er gamla eyðublaðið okkar endur-
bætt. Það er nú kallað áatal og nær yfir 6 ættliði eða 63 einstaklinga. Annað
blaðið er líka kallað áatal en nær yfir 5 ættliði eða 31 einstakling. Þriðja blað-
ið er kallað fjölskyldusíða og tekur til foreldra og barna þeirra. Arngrímur vill
taka það fram, að tvö síðasttöldu eyðublöðin eru
hönnuð eftir erlendum tölvuútskriftum sem Þorgils
Jónasson sendi honum. Þau eru því um leið dæmi um
hvað tölvur geta gert.
Eyðublöðin er öll af staðalstærðinni A4 og passa
því vel í fáanlegar lausblaðamöppur. Að lokum skal enn á það bent, að það er rúm-
lega helmingi billegra að kaupa þessi eyðublöð í blokkum af Ættfræðifélaginu en að
láta aðra ljósrita fyrir sig.
GATUR FRlÐU
Hér á eftir birtum við svo síðustu gáturnar frá
dr. Fríðu Sigurðsson:
Steinunn húsfreyja á Hjallanesi á Landi er 1801
sögð Gottskálksdóttir en 1816 Gottsveinsdóttir.
Hvað er rangt og hvernig stendur á villunni?
Reynið að finna skýringu á því, af hverju sr.
Eggert Bjarnason í Klausturhólum skrifaði Pétur
Björnsson á Efri Brú í Búrfellssókn fyrst 38 ára
gamlan í manntali 1801 (bls. 294) en leiðrétti í 28?
Hvað segið þið við því, að á Mosvöllum í Holtssókn í Önundarfirði býr 1816 Jón
Guðlaugsson 34 ára, en 1845 Jón Guðlaugsson 58 ára?
Af hverju getur það ekki verið rétt sem segir í Islenskum æviskrám, að Magnús
Arnason trésmiður sé fæddur 20. desember 1820?
(nmxnmm*nxB
QHSIíIini3CLl2l0
(siinmflSiinnB