Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.1991, Síða 5
5
Lítil athugasemd
*
I haust var ég aðeins að athuga upphaf Breckmannsættar [útg. á Akranesi
1982; höf. Ari Gíslason]. Sá ég þá, að þar vantar barnsmóður Páls Bjarna-
sonar Breckmanns. Einar sonur hans er sjö ára fósturbarn í manntalinu
1801 og er á Reynivöllum í Kjós, en ég fann hann fæddan í Reykjavík.
Einar Pálsson, f. 14. apr. 1794 í Landakoti, móðir: Arndís Jónsdóttir. Hún
var skírð 28. apr. 1758 í Mýrarhúsum, dóttir Jóns Magnússonar, bónda í
Mýrarhúsum og svo í Landkoti, og k.h. Höllu Sæmundsdóttur.
Læt ég svo niðja Páls Breckmanns og Arndísar Jónsdóttur um að leita
betur.
Hólmfríður Gísladóttir.
Af Norðlendingum
(bréf til félagsins)
Ég sendi ykkur hér með ljósrit úr DV frá 25. okt. 1990. Ég lít á ættfræði-
síðuna, þegar ég sé blaðið, sem er ekki reglulega. Þar hef ég þó þrívegis
rekizt á sömu röngu ættfærsluna og birtist í þessari grein og er að mig
minnir upphaflega komin úr Ættum Skagfirðinga. I greininni stendur:
"Móðir Magnúsar [b. í Klömbrum, Björnssonar] var Sigurlaug Arngríms-
dóttir, b. á Hrafnabjörgum, Runólfssonar ... Móðir Arngríms var Björg
Arngrímsdóttir, sýslumanns á Laugum í Reykjadal, Hrólfssonar." En bar á
að standa: "Sigurlaug (í Haga í Aðaldal) var Arngrímsdóttir frá Stóru-
Laugum í Reykjadal, Björnssonar bónda þar, Arngrímssonar sýslumanns
s.st., Hrólfssonar." - Björn var bróðir Bjargar í Hafrafellstungu, og var
því eðlilegt, að þar kæmi Arngrímsnafnið líka. Þriðja systkinið var Páll á
Víkingavatni.
Annað dæmi vil ég biðja menn að leiðrétta hjá sér. í bókinni Svarf-
dælingar, II. bindi, bls. 324, er sagt, að samkvæmt ættartölu hafi Björg
Einarsdóttir gifzt Guðmundi Guðmundssyni á Bakka. Þar er sleginn sá
varnagli, að ekki sé vitað, hver sá var eða á hvaða Bakka, en hann hverfur
þegar þetta er endurtekið í Ljósmæður á íslandi í þætti Guðrúnar
Jónsdóttur frá Reykjahlíð. Þessi tengdasonur hennar hét Guðni Sigurðs-
son og var járnsmiður, og bjuggu þau Björg á Bakka í Fnjóskadal 1838-
1843. Eftir lát Bjargar kvæntist Guðni Maríu Þorgrímsdóttur, og var
Ásgrímur Jónsson listmálari sonarsonur þeirra. I bókinni Myndir og minn-
ingar er kafli aftast um ættir Ásgríms. Éinnig má benda á þátt Benjamíns
Sigvaldasonar, Afi listamannsins, í öðru bindi Sagnaþátta hans.
Akureyri, 8. nóv. 1990,
Hjörtur Arnórsson.