Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.1991, Side 1
FRETT ABREF
rFRÆÐIFELAGSINS
5.tbl.9.árg
Okt. 1991
Almennur félagsfundur í Ættfræðifélaginu 16.05.1991.
Gestir fundarins voru Már Jónsson sagnfræðingur og Friðrik
Skúlason tölvufræðingur.
Úrdráttur úr erindi Más Jónssonar um "Stóradóm".
Hóf hann erindi sitt á því að segja frá þungum refsingum
vegna sifjaspella frá 1545-60. Sem dæmi um refsingar nefndi
hann 40 daga upp á vatn og brauð, ekki neyta fisks eða
kjöts á vissum dögum, ekki að koma í kirkju, hvorki bera
vopn eða skrúðklæði, helst að klæðast lörfum, ekki að sækja
samkomur, ekki að baðast eða skera hár sitt, maríubænir ótal
sinnum.
Eftir siðaskiptin urðu mikil umskipti. Konungur réri að því
í 4 ár að koma á líflátshegningu vegna sifjaspella og
skírlífsbrota. Hinn nýi lagabálkur var kallaður
"Langidómur" hann var kveðinn upp af 20 mönnum sem
lögmennirnir Eggert Hannesson og Páll Vigfússon skipuðu að
fyrirlagi Páls Stígssonar. Hæsta refsing var líflát
samkvæmt "Stóradómi" fyrir önnur brot sem ekki þóttu jafn
saknæm konu stighækkandi sektir, vandarhögg og húðlát,
eignarmissir og útlegð. Sá munur var gerður á karli og konu
í þessum sökum að dauðadæmdir karlar skulu hálshöggvnir en
konum drekkt. Með "Stóradómi" var veraldarvaldinu fengið
dómsvald í stað kirkjunnar áður.
Var ekki farið að dæma eftir þeim að fullri hörku fyrr en
eftir 1590. Næstu tvær aldirnar voru tugir karla og kvenna
líflátnir eftir ákvæðum "Stóradóms" síðasta aftakan vegna
blóðskammar var 1763.
Það kom m.a. fram í erindi Más, þó þungar fésektir væru
vegna hjúskaparbrota og sifjaspella dróg það ekkert úr
barneignum utan hjónabands, t.d. 1820 voru 15% fædd utan
hjónabands 1830 20% og 1860 25%.
Friðrik Skúlason kynnti nýja og endurbætta útgáfu af
ættfræðiforritinu "Espólín" fyrir Pc tölvur.
Við viljum vekja athygli á að það hafa verið gerðar
breytingar á aðstöðu fyrir safngesti á Þjóðskjalasafninu.
Lesvélum hefur verið fjölgað og þær settar í herbergi til
hliðar við aðalsalinn og eru spólurnar allar þar inni.
Nýir þægilegir stólar eru við lesvélarnar.
Við þetta losnuðu borð í aðalsalnum. Petta er allt til bóta
og ber að þakka stjórnendum safnsins. Við sem erum daglegir
gestir á safninu finnum vel fyrir öllum breytingum en alltaf
er það salurinn í sinni gömlu mynd sem tengir okkur inn í
söguna.
Hólmfríður Gísladóttir formaður