Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.1992, Side 1
FRETTABREF
'ÆTTFRÆÐEFÉL AGSIN S
7. tölublað 10. árg.
Nóvember 1992
Frá félagsfundi
Almennur félagsfundur í Ættfræðifélaginu 8. október
1992 að Hótel Lind við Rauðarárstíg í Reykjavík.
Húsið var opnað kl. 19.30, margir fundarmenn mættu
þá til að kynna sér bækur er voru til sölu hjá Ættfræðifél-
aginu og öðrum og til að bera saman bækur sínar við aðra
og skiptast á upplýsingum.
Formaður setti fundinn og stjórnaði honum, bauð
félagsmenn og gesti velkomna, gaf síðan Árna Björnssyni
þjóðháttafiræðingi orðið. í klukkutíma erindi Áma Bjöms-
sonar var margskonar fróðleikur, um húsakynni fyrri alda,
merkisdaga, vetrarkomu og hvemig reynt var að spá fyrir
vetri.
Eftir erindi Áma Bjömssonar var kaffihlé og stóð það
í 35 mín. Þá tók til máls Kristín H. Pétursdóttir og skýrði
frá samantekt sinni um íslenskar ættfræðiheimildir. Fund-
armenn fengu í hendur sýnishom af því hvemig hún setur
upp skrána fyrir íslenskar ættfræðiheimildir. Kristín H.
Pétursdóttir talaði um þá erfiðleika og slæma aðstöðu hér
á landi fyrir vinnandi fólk til að komast að gögnum er
tilheyrðu ættfræðigrúski og bar saman við þær aðstæður
er hún kynntist erlendis.
Ásthildur Steinsen bað um orðið og skýrði frá við-
brögðum félagsmanna við fyrirspumum sínum til þeirra í
síðasta fréttabréfi. Það kom fram hjá Ásthildi Steinsen,
að félagsmenn brugðust fljótt og vel við og sendu henni
upplýsingar um nokkrar talsímakonur, og lagði hún fram
fyrirspurnir til fundarmanna um enn fleiri talsímakonur.
Hilmar Friðrik Thorarensen bað um orðið og kynnti
Árbækur nemenda Samvinnuskólans, 13. bindi, 2600 bls.
sem innihalda 15000 mannanöfn, og væri núverandi verð
kr. 16.800 en áður kr. 21.800.
Eiríkur Eiríksson tók til máls og spurði hvort nokkur
vissi um mynd af Hákoni Espólín, pr. á Kolfreyjustað,
hann var sonur Jóns Espólíns.
Formaður sleit fundi kl. 23 og var fundarsókn mjög
góð.
Ritari
Ásthildur Steinsen:
Fyrirspurnir til félagsmanna
Ættfræðifélagsins
á félagsfundi 8. okt. 1992 v/gagnasöfnunar
T alsímakvennatals
Enn er ég komin af stað og nú til að láta ykkur vita að
ég er búin að fá svör við fyrirspurnum mínum frá síðasta
fundi varðandi Maríurnar tvær, sú frá Löngumýri giftist og
átti börn, hún er móðir Knúts heitins Knudsen
veðurfræðings.
Mér áskotnaðist mynd af hinni síðari, þeirri sem heitir
Kristín María Elísabet Jónsdóttir, svo nú eru þær frágeng-
nar.
Sólveig Guðmundsdóttir vann við miðstöðina í
Reykjavík 1910 og einnig er kona með sama nafni 1915,
hvort það er sú sama veit ég ekki, en allt um það, ég leita
bara að einu nafni og hefi haldið fram að þessu að þetta
væri dóttir Guðmundar landlæknis en hún giftist síðar
vestur um haf og ílengdist þar, ef þetta er sú, er hún 14 ára
1910, en kona Ingimars Jóhannessonar kennara hét einnig
þessu nafni og þetta gæti alveg verið hún... f:26.02.1893/
d:25.01.1971
Hvor þeirra er þetta?
Svo áskotnaðist mér vitneskja á dögunum um Ólafíu
Guðfinnu Sigurðardóttur símavörð á ísafirði f:04.10.1886
/d:16.02.1924.
Foreldrar hennar voru Sigurður Þorvarðarson kaup-
maður á ísafirði (f:26.09.1860) og k.h Halldóra Sveins-
dóttir (f:24.06.1860)
Veit einhver meira um hana??
Kannist þið við Björn Kristjánsson st.stj. á Kp.
f:26.02.1858/13.08.1939, k.h var Sigþrúður Guðmunds-
dóttir f: 13.05.1852/02.03.1928. Þau hafa sennilega átt
dætur.
Og svo er það Einar Runólfsson st.stj. á Vp. 1930-36
f: 12.11.1872/24.07.1936 konahans var Sólveig Elínborg
Vigfúsdóttir f:30.07.1879, hún er 27 ára þegar síminn
kemur til landsins. Þau gifta sig aldamótaárið..
áttu þau dætur, sem voru við símann??
Framhald á næstu síðu
1