Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1993, Blaðsíða 1
FRETT ABREF
rFRÆÐIFELAGSINS
1. tölublað 11. árg.
Janúar1993
Frá félagsfundi.
Almennur félagsfundur í Ættfræðifélaginu, fimmtu-
daginn 3. des. 1992 að Hótel Lind við Rauðarárstíg.
Húsið var opnað klukkan 19.30 fyrir bókakynningu.
Fonnaður setti fundinn og stjómaði honum.
Aðalefni fundarins var litskyggnusýning Þorsteins
Jónssonar bókaútgefanda. Ættfræðistofa hans hefur á
undanfömum árum komið sér upp safni af gömlum bæjar-
myndum víðsvegar af landinu. Þorsteinn bað fundargesti
um að láta sig vita ef þeir vissu af slíkum myndum. Hluti
af þessu safni er óskráður og reyndu fundargestir að geta
sér til um af hvaða bæjum og húsum skyggnurnar væm.
Fundarstjóri þakkaði Þorsteini Jónssyni fyrir athyglis-
verða sýningu.
Eftir kaffihlé gaf formaður orðið laust. Fyrstur tók til
máls Jóhannes Kolbeinsson og þakkaði Þorsteini Jónssyni
fyrir myndasýninguna og ritstjóm Fréttabréfsins fyrir gott
blað sem hafi stórlega batnað. Siðan tók Jón Valur
Jensson til máls og þakkaði Þorsteini Jónssyni sömuleiðis
fyrir góða myndasýningu. í máli hans kom meðal annars
fram að ráð væri fyrir Þorstein að halda fund með
gömlum Reykvíkingum, sem kynnu að þekkja einhveija
myndanna.
Ekki tóku fleiri til máls og var fundi slitið kl. 22.25.
Fundarsókn var mjög góð.
Fundarritari
Stjórn Ættfræðifélagsins
sendir félagsmönnum öllum,
bestu nýársóskir
og þakkar samstarf
á liðnu ári.
1