Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.06.1993, Qupperneq 1
FRETTABREF
ÆTTFRÆÐIFEL AGSIN S
5. tölublað ll.árg.
júní1993
Laugardaginn 26. júní n.k. verður haldið í
hina árlegu sumarferð Ættfræðifélagsins.
Leiðin liggur að þessu sinni um hina sögufrægu
Dalasýslu. Lagt verður af stað frá Umferðar-
miðstöðinni, vestanmegin, kl. 8.00 - stundvís-
lega. Heimkoman ræðst nokkuð af veðri en ætti
að verða um kl. 22.00.
Leiðsögumenn í Dölum verða Einar G. Pétursson cand.
mag. frá Stóru Tungu og Eggert Th. Kjartansson, sumarbóndi
í Fremri-Langey. Fararstjóri í ferðinni verður
Guðmar Magnússon.
Áætlað er að fara um Heydal á vesturleið en
Bröttubrekku suður. Keyrt verður, eins og fram
kemur á meðfylgjandi korti, um Suðurdalina,
Hvammssveit og Fellsströnd, fyrir Klofning, inn
Skarðsströnd og Saurbæ og Svínadalinn til baka
að Laugum.
Snæddur verður hádegisverður á Edduhót-
elinu að Laugum í Sælingsdal og geta þeir sem þess óska keypt sér þar heitan
mat. Matarkaupin þarf að panta sérstaklega um leið og ferðin er pöntuð.
Kaffistopp fer eftir veðri og vindum en þátttakendur þurfa að hafa með sér
nesti til dagsins.
Fargjald er krónur 2500 fyrir 13 ára og eldri, 1000 krónur fyrir yngri, sem
taka sæti.
Samið hefur verið við hótelið að Laugum um kjötsúpurétt og kaffi á eftir
og er verð ca. 1300 krónur.
Þátttöku skal tilkynna til einhvers eftirtalinna aðila:
Guðmar Magnússon, sími 625864 e. kl. 17.00
Klara Kristjánsdóttir, sími 51138
Kristín H. Pétursdóttir, sími 12937 e. kl. 17.00
Guðfinna Ragnarsdóttir, sími 681153
AKRANES^^
SELTJARNARNES^ Siufwyft' a/\ V1 w w Ko»*<lir
REYKJAVll
Alftane^
GARÐABÆR§
HAFNARFJÖROU^