Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.05.2004, Qupperneq 13
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í ntaí 2004
Eiríkur G. Guðmundsson
Manntalið 1703
Elsta heildarmanntal í heimi
Árið 1703 var lokið við töku fyrsta heildarmanntals
hér á landi. Þetta manntal á því stórafmæli um þessar
mundir. Á því skal vakin athygli enda er urn einstæða
heimild að ræða. Manntalið 1703, eins og það er
jafnan kallað, er elsta varðveitta manntal í heimi sem
nær til allra íbúa í heilu landi þar sem getið er heimilis,
nafns, aldurs og stöðu eða atvinnu allra íbúanna.
Það manntal sem kemst næst því íslenska var
tekið árið 1666 í Nýja Frakklandi í Kanada. Það
manntal taldi þó aðeins franska íbúa nýlendunnar en
þeir voru þá 3.200 að tölu. Frá þessum árum og fram
um 1700 eru til talningar á fólki í Noregi og
Englandi. Þær voru ekki eins nákvæmar og náðu
ekki til allra. Árið 1719 var tekið heildarmanntal í
Prússlandi og er það fyrsta heildarmanntal á megin-
landi Evrópu. Fyrir daga manntala hafði tíðkast víða
um heim að telja skattgreiðendur og vopnfæra menn.
Svipað þekktist hér á landi löngu áður en manntalið
1703 var tekið. Gissur Isleifsson Skálholtsbiskup
mun hafa látið telja skattbændur um 1100. Önnur
slík talning fór fram 1311. Engar talningaskýrslur
hafa varðveist en til eru frásagnir af þessum talning-
um. Þá má nefna skrá yfir skattgreiðendur frá árinu
1681 þegar lagður var á aukaskattur á íslendinga
vegna stríðs Dana og Svía.
íslendingar kvörtuðu
Ákvörðun um töku manntalsins má rekja til slæms
efnahagsástands á Islandi á 17. öld og stöðugum
harðindum í lok aldarinnar. Það var þó ekki bara
slæmt árferði með erfiðleikum til lands og sjávar
sem skóp hið bága ástand. Breytt skipulag
einkonunarverslunarinnar á síðasta fjórðungi 17.
aldar hafði hér mikið að segja. Þar má einkum nefna
skiptingu landsins í verslunarsvæði með boði og
bönnum og ströngum refsingum ef brotin voru.
Islendingar kvörtuðu undan þessu ástandi við
yfirvöld í Kaupmannahöfn og óskuðu þess að fá að
senda fulltrúa sinn á fund konungs. Sú beiðni var
samþykkt og það kom í hlut Laurtiz Gottrups lög-
manns að ganga fyrir konung og skýra stöðu mála á
Islandi. I kjölfarið skipaði konungur jarðabókar-
nefndina svokölluðu en í henni voru þeir Árni
Magnússon skjalavörður og prófessor í Kaupmanna-
höfn og Páll Vídalín varalögmaður. Hlutverk
nefndarinnar var margþætt en mestur starfi þeirra
félaga var heildarúttekt á efnalegum aðstæðum
Islendinga og fólst í því að telja fólk og fé og semja
nákvæmar lýsingar á öllum bújörðum á landinu.
Manntalið var tekið árin 1702 til 1703, kvik-
fjártalið sumarið 1703 og jarðabókin var í smíðum
1702 til 1714, enda mikið verk. Þessar heimildir eru
varðveittar í Þjóðaskjalasafni Islands. Manntalið er
að fullu varðveitt. í kvikfjártalið vantar nokkuð og
Múla- og Skaftafellssýslur vantar í jarðabókarverkið.
Líklega hefur sá hluti jarðabókarinnar farið í
brunanum mikla í Kaupntannahöfn árið 1728. Þrátt
fyrir að örlítið vanti á að þessar heimildir séu að fullu
varðveittar er hér engu að síður um að ræða ein-
stæðar heimildir um íslenskt þjóðfélag á öndverðri
18. öld. Líklega getur engin önnur þjóð státað af
sambærilegum heimildum. Bæði manntalið og jarða-
bókin voru gefnar út á prent á fyrri hluta síðustu
aldar.
Fyrirmæli um manntal
Erindisbréf konungs til Árna Magnússonar og Páls
Vídalíns frá 22. maí 1702 felur í sér mörg fyrirmæli
Manntalið 1703
Sýning Þjóðskjalasafnsins
Þjóðskjalasafnið setti á fót sýningu árið 2003 í
tilefni þess að þá voru liðin 300 ár frá því að
manntalið 1703 var tekið. En það er elsta varð-
veitta heildarmanntal í heimi. Þar voru m.a. sýnd
frumskjöl manntalsins og úrvinnsla ýmiss konar.
Höfundur sýningarinnar var Eiríkur G. Guð-
mundsson sagnfræðingur og sviðsstjóri upplýs-
inga- og útgáfusviðs Þjóðskjalasafns, en fleiri
starfsmenn safnsins lögðu hönd á plóginn.
Olöf Garðarsdóttir mannfjöldafræðingur
vann við gerð tölfræðiefnis og Olafur Engilberts-
son hönnuður sá um uppsetningu veggspjald-
anna.
Þjóðskjalasafnið hefur veitt Fréttabréfi Ætt-
fræðifélagsins leyfi til að birta veggspjöld sýn-
ingarinnar sem eru einkar áhugaverð og eiga
erindi við alla þá sem ættfræði unna og er þeim
fléttað hér inn í grein Eiríks G. Guðmundssonar.
Ættfræðifélagið kann safninu bestu þakkir fyrir.
http://www.vortex.is/aett
13
aett@vortex.is