Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2005, Qupperneq 17
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2005
Gunnar Guðmundsson frá Heiðarbrún:
Ættin Hafstein
Er hún í beinan karllegg af Sæmundi fróða og Oddaverjum?
í Fréttabréfi Ættfræðifélagsins (mars 2005) er birt
erindi Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings, um ættir
fyrsta innlenda ráðherra okkar íslendinga, Hanncsar
Hafstein. Þar kemur fram, að karlleggur Hafstein-
ættarinnar er rakinn til Heine Hafreka, sem er
prófastur í Færeyjum og er fæddur 1514. Hjá
Guðjóni kemur fram að Heine var Jónsson og hann
hrakti á báti frá heimalandi sínu Noregi og til
Færeyja. Allt þetta vissi ég, nema ekki það, að þarna
er einn „veikur hlekkur“ í ættrakningunni.
En við vitum eitthvað meira um uppruna Heine og
skal það nú tilgreint. Upphaf þess máls var að vorið
1988 vildi færeyskur maður, Ismar Joensen kaup-
maður í Fuglafirði í Færeyjum (sem er afkomandi
Heine Hafreka) komast eftir því hvort rekja mætti
ættir Heine lengra aftur til fortíðar. Seinna um sum-
arið ræddum við Ismar saman á heimili fjölskyldu
hans í Fuglafirði. Þá sagði hann mér að faðir Heine
hefði verið Jón Haraldsson prestur í Biörgvin í Nor-
egi og að sá Jón hefði verið af íslenskri ..aðalsætt.“
Ekki var talað um íslenskar „aðalsættir“ á þessum
tíma, en samt er augljóst hvað átt er við. Það táknar
ótvírætt, að hann hafi verið af íslenskri goðorðs-
mannaætt. Við getum líka glögglega séð að hér er átt
við Oddaveriaættina. vegna þess að hún var eina
íslenska höfðingjaættin sem hafði Haraldamafnið í
nafna„flóru“ sinni. Örugglega liggur þetta til Har-
aldar Sæmundssonar í Odda d. 1251 og mjög líklega
í gegnum Jón Haraldsson sem er kirkjubóndi að
Árbæ í Holtum árið 1371 og skal ég nú fara nokkru
nánar út í það.
Haraldur sonur Sæmundar Jónssonar í Odda er sá
fvrsti þeirra ættmenna er bar nafn þetta. Hann er
goðorðsmaður í Odda og í yfirbragði þótti hann
maður virðulegur. Hann er hrakinn til Noregs á fund
Hákonar Noregskonungs (1249), því hann hafði
enginn konungssini verið og drukknaði á heimleið
1251. Kona hans var Sigríður systir Halls Þorsteins-
sonar í Glaumbæ. Frá Haraldi hlýtur Heine að hafa
verið kominn.
Sonur Haraldar er Sæmundur goðorðsmaður í
Odda. Eftir misheppnaða tilraun Haraldar og annara
Oddaverja til að drepa jarl konungsins, Gissur
Þorvaldsson, rekur Gissur Sæmund norður í land og
er það haustið 1264. Sá merki fræðimaður, Valgeir
Sigurðsson á Þingskálum benti mér á, að fjórum
árum eftir norðurför Sæmundar deyr Gissur jarl
(1268) og að þá hafi ekkert það vald verið til í land-
inu sem vildi, eða gat hindrað Sæmund í að flytja
aftur suður í Rangárþing, hérað uppruna síns og
eigna og honum hafi hlotið að standa hugur til þess.
Á Sturlungaöld höfðu Oddaverjar sölsað undir sig
nær allar helstu jarðirnar í héraðinu. Auk Odda voru
það jarðir eins og Skarð og Stóruvellir í Landsveit,
Ás í Holtum, Gunnarsholt og Keldur á Rangárvöll-
um, Breiðabólstaður, Eyvindarmúli og Hlíðarendi í
Fljótshlíð, Stórólfshvoll og að einhverju leyti Skógar
undir Eyjafjöllum. I Sturlungasögu má ennfremur
ráða í það að Teigur í Fliótshlíð hafi verið Odda-
verjum innan handar og með þetta allt í huga má
ætla, að þeir hafi ekki látið hina landstóru kirkjujörð
Árbæ í Holtum fram hjá sér fara. Hafi Sæmundur
aftur flutt suður, þá hafði hann áður selt Oddann og
átti því ekki þangað afturkvæmt og það var því
skoðun Valgeirs að Sæmundur hefði sest að í Teigi.
Ég ætla Sæmund fæddan nærri 1235 og hans er
síðast getið 1273.
Næst ber að nefna að árið 1332 býr maður að
nafni Haraldur í Teigi í Fljótshlíð. Vegna jarðarinnar
og fágæti nafnsins taldi Valgeir að hann væri sonur
Sæmundar Haraldssonar frá Odda.
Árið 1371 er bóndi og kirkjuhaldari að Árbæ í
Holtum maður að nafni Jón Haraldsson. Um það
leyti virðist kona að nafni Guðrún Haraldsdóttir eiga
jörðina „Efra-Dal“ undir Eyjafjöllum og hafa menn
ætlað þau systkin. Það var skoðun Valgeirs að þau
hafi verið börn Haraldar í Teigi.
Tímans vegna getur þetta náð að ganga upp, en ég
hef þó tilhneigingu til að bæta einum ættlið inn á
milli Haraldar í Teigi og Sæmundar frá Odda. Skv.
Teigsmáldaga (Islenskt fornbréfasafn = DI. II, 686-
7) frá 1332 býr líka í Teigi maður að nafni Þorsteinn
Hallsson. (Hann er hugsanlega sá sami og er prestur
með því nafni í Rangárþingi þremur áratugum síðar,
en það þarf þó alls ekki að vera). Tilgátur eru bæði
um ætt Þorsteins og eins það að kona hans hafi verið
fyrmefnd Guðrún og tel ég það hvoru tveggja að litlu
hafandi. Mér þykir líklegra að Haraldur og Þorsteinn
Hallsson bændur í Teigi hafi verið bræður og að faðir
þeirra hafi verið sonur Sæmundar Haraldssonar frá
Odda. Byggi ég það á líklegum aldri Guðrúnar og
því sem upphaflega vakti eftirtekt mína, en það eru
nöfnin Þorsteinn og Hallur. Það eru hin næstu nöfn í
móðurætt Sæmundar frá Odda, því Sigríður móðir
hans var systir Halls Þorsteinssonar í Glaumbæ (og
Hallur dvaldi heilan vetur í Odda (1254) þegar
Sæmundur var yngri maður, vart kominn af mótunar-
skeiði og nýlega orðinn föðurlaus). Hafa ber í huga,
http://www.vortex.is/aett
17
aett@vortex.is