Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2011, Blaðsíða 1

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2011, Blaðsíða 1
FRETTABREF ÆTTFRÆÐIFÉLAGSINS ISSN 1023-2672 1. tbl. 29. árg. - febrúar 2011 Meðal efnis íþessu blaði: Ránið, markið og rjólbitinn Samantekt: Guðfinna Ragnarsdóttir Blákaldar staðreyndir um markið hans Gottsvins Borgfirskar œviskrár Annáll Hallgríms Jónssonar djákna Bjarni Harðarson: Tómasi Sœmundssyni leiðist Hugleiðingar um ritmenningu íslendinga Guðjón Oskar Jónsson skrifar: Suður heiðar Fyrirspurnir o.fl. Hér stendur Magnús Kristinsson bóndi í Austurhlíð í Biskupstungum með eina af sínum mörgu kindum sem hann hefur markað með Gosamarkinu, markinu sem hann og forfeður hans hafa notað allar götur frá því Gottsvin Jónsson, Gamli-Gosi eða Þjófa-Gosi í Steinsholti, gaf langalangalangafa hans, Þorsteini Jónssyni það árið 1827. Sagan um Gosamarkið hefur lifað með ættinni og í Kambsránssögu allar götur síðan. En hvað segja blákaldar staðreyndir um mark Gottsvins? Er allt sem sýnist? Sjá greinar á bls. 3-7. (Ljósmynd Guðfínna Ragnarsdóttir) www.ætt.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.