Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2011, Qupperneq 3

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2011, Qupperneq 3
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2011 Fjármark hjúpað dulúð fortíðar Fjármörk hafa í þrígang orðið á vegi mínum undan- farin ár, þótt lítil sé ég fjárkona. Fyrst var það Páll Lýðsson sem hafði orð á því við mig að hann vœri að athuga sögu fjármarka og það hvernig fjármörk hefðu gengið í œttir mann fram af manni. Pví miður entist honum ekki aldur til þess að Ijúka því verki en hann hafði þó ritað athyglisverða grein í Arnesing, ritll, árið 1992. Sú grein mun koma hér nokkuð við sögu. Nœst var það œttarsaga fjármarks Magnúsar Grítnssonar bónda og kennara á Neðra-Apavatni, en fjármark hans á œttir sínar að rekja til langalangafa hans, Kristjáns Magnússonar bónda og hreppstjóra í Skógarkoti í Þingvallasveit. I þriðja sinn kom fjármark til tals þeg- ar Gunnlaugur Skúlason, dýralœknir, frá Brœðratungu sagði mér frá frá langafabróður sínum, Magnúsi í Bráðrœði, sem eignaðist fjármark sitt á einkennileg- an hátt. Við nánari athuganir kom í Ijós að fjármark- ið sem Páll Lýðsson ritaði um í Arnesingi var einmitt það sem Gunnlaugur sagði mér frá. En þá kom tiú babb í bátinn því athuganir Páls bentu til þess að frásögn Gunnlaugs vœri algjörlega tilhœfulaus! Úr þessu verð- ur seint skorið, hvað er rétt og hvað er ekki rétt, en ég lœt hér fylgja báðar þessar frásagnir. Þcer sýna okkur eftil vill að sannleikurinn liggur ekki alltafá lausu, en líka að það geta verið margar hliðar á hverju máli. Ég lœt lesendum mínum eftir að spá í svarið og taka af- stöðu eða leyfa dulúð fortíðarinnar að halda áfram að hjúpa þetta gamla fjármarksmál. Ritstjórinn Samantekt: Guðfinna Ragnarsdóttir Ránið, markið og rjólbitinn „Sá á ekki að stela sem ekki kann að fela.“ Þessi orð eru höfð eftir Gottsvin Jónssyni, öðru nafni Þjófa-Gosa eða Gosa gamla. Gottsvin kom oft við sögu í þjófnaðarmál- um og af honum eru margar frásagnir í Kambsránssögu Brynjúlfs frá Minna-Núpi. Við hann er kennt Gosamarkið sem er uppi- staðan í eftirfarandi frásögn. Gottsvin Jónsson var faðir Sigurðar Gottsvinssonar á Leiðólfsstöðum í Flóa, sem var forsprakki Kambsránsmanna. Ránið var framið 9. febrúar 1827 á bænum Kambi í Flóa. Ránið var síðar kennt við þann bæ og kallað Kambsránið. Ránsmenn voru grímuklæddir, heimilisfólkið var bundið og hirslur brotnar upp í leit að peningum. Höfðu ránsmenn um 1000 ríkisdali upp úr krafsinu. Ymiss vegsummerki, svo sem skór og vettlingur, leiddu til handtöku. Þuríður, formaður á Stokkseyri, taldi sig t.d. þekkja handbragðið á skó sem fannst eft- ir ránið og leiddi það til handtöku ránsmannanna. Sigurður Gottsvinsson átti ekki langt að sækja glæpahneigðina því faðir hans, Gottsvin Jónsson, (1767-1844) var oft tekinn fyrir þjófnað. Hann lá alla tíð undir grun um afbrot af ýmsu tagi en aldrei sannaðist neitt á hann, þótt sonur hans endaði á Brimarhólmi, dæmdur til hýðingar, brennimerking- ar og ævilangs þrældóms og væri hálshöggvinn þar árið 1834. Vel gefínn En Gottsvini var ekki alls varnað. Hann þótti vel gef- inn og var góður lítilmagnanum og var vinsæll með- al almennings. Guðrún Gísladóttir frá Hæli, fædd 1814, skýrleikskona, fróð og minnug, sagði Gottsvin hafa verið sér góður og gaf hann henni oft syk- urmola og brauðkökur. I sögunni af Þuríði formanni og Kambsránsmönnum eftir Brynjúlf Jónsson frá Minna-Núpi er honum lýst sem fríðum, geðprúðum og vinsælum. Hann þótt góður nágranni og til allra mannrauna var hann hinn öruggasti og þrautbesti og hverjum manni skjótráðari og úrræðabetri ef vanda bar að höndum. Aldrei bilaði honum hugur og aldrei þóttust inenn vita til að honum mistækist handtök. Hann var lengi formaður í Þorlákshöfn og hásetar hans höfðu bæði elsku og traust á honum, segir Brynjúlfur. Hann hneigðist snemma til drykkju og var þá svo uppstökkur að eigi mátti orði halla og að sama skapi illskiptinn ef í það fór, en hlífði þó alltaf vesalmenn- um. Þótt Gottsvin væri sakaður um ótal þjófnaði þá bar aldrei á þjófnaðartilhneigingunni hjá honum á æskuárunum. Til merkra að telja Kristín kona hans var sögð hafa marga ókosti, svo sem sjálfsþótta, hræsni, geðfrekju, ágimd og eyðslusemi. Hún þótti svipmikil en ekki svipgóð að sama skapi. Gottsvin þótti fá betra orð áður en hann giftist en eft- ir. Gottsvin var fæddur 1767 að Minni-Völlum á http://www.ætt.is 3 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.