Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2011, Page 7

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2011, Page 7
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2011 Gottsvins, sonur Jóns yngra Gottsvinssonar. Hann var albróðir Jóns Jónssonar „bláa“ í Votmúla-Norðurkoti. Markið er enn hjá Jóni í töflunni 1883, en það er alveg horfið árið 1890. Páll segist ekki hafa fundið það síðan en markið hamarsskorið sýltog gagnbitað kemur fyrir í töflunum 1883 og 1896 hjá feðgunum Þorkatli Erlendssyni í Kringlu og Erlendi Þorkelssyni í Skálholti. Tilbúningur Páll segir því sýnt að klausan í Kambsránssögu um gjafamarkið hans Gottsvins í Steinsholti sé einber til- búningur. Hann segir Brynjúlf frá Minna-Núpi höfund Kambsránssögu hafa verið trúgjarnan og gleypt við þessari sögu um fjármarkið og rjólið. Mark Gottsvins segir Páll er hins vegar dæmigert erfðamark. En eins og að ofan greinir tókst honum að rekja það í þrjá ætt- liði. Páll virðist því með óyggjandi hætti hafa sýnt fram á að mark Gottsvins fór ekki úr ættinni held- ur hélt áfram til sonar hans og sonarsonar. Fróðlegt væri að leita uppi sögu Gosamarksins sem bænd- urnir í Austurhlíð hafa markað með hátt á aðra öld. Gat Gottsvinn hafa átt fleiri fjármörk? Hefði Páll þá ekki átt að finna þau? Hvað gerði sögu Gosamarksins svona lífseiga ef hún var ekki sönn? Osvöruðu spurn- ingarnar eru margar og óvíst hvort nokkurn tímann fást svör við þeim öllum. Borgfirskar æviskrár Þuríður Kristjánsdóttir f.v. prófessor við Kennara- háskóla íslands hélt erindi á janúarfundi Ættfræði- félagsins og sagði frá vinnu sinni við útgáfu Borgfirskra æviskráa. Hún tók við úgáfunni þegar 8. bindið fór í vinnslu og hefur sinnt verkinu síðan. Hún hafði aldrei ætlað sér að koma nálægt þessari ætt- fræðivinnu, enda segist hún ekki vera ættfræðingur. Hún átti sem nýráðinn framkvæmdastjóri Sögufélags Borgfirðinga aðeins að stjórna þeim sem sáu um verkið. Atvikin höguðu því þó þannig að hún sat allt í einu uppi nánast ein með verkið. Hún segir þetta hafa bjargast þar sem Ari Gíslason, sem þá var orð- inn heilsulítill, hafi kennt sér til verka. Hann var, seg- ir hún, eins og sporhundur, ótrúlegur að róta og leita í heimildum og grafa upp fróðleikinn og samhengið. Nú er að ljúka vinnslu á 14. heftinu og átti það að vera lokaheftið, segir Þuríður. Ef það ætti að launa þetta í samræmi við vinnuframlag kæmi engin bók út. Þetta hefur rétt staðið undir sér þótt það mesta sé gert í sjálfboðavinnu. Ein bók veltir þeirri næstu. Þegar Þuríður lítur til baka segir hún að þetta hafi auðvit- að líka verið mjög skemmtilegt og afar fróðlegt. Hún sagði á sínum tíma að hún mætti hvorki kalka né deyja fyrr en verkinu væri lokið og segir það góða til- finningu að sjá nú fyrir endann á verkinu. En 14. bindið verður ef til vill ekki það síðsta eins og við var búist. Astæðan er sú að Guðmundur Sigurður Jóhannsson, ættfræðingur á Sauðárkróki, var fenginn til þess að gera leiðréttingar og viðbæt- ur við öll fyrri bindinn og eins og hans var von og vísa gróf hann upp svo mikinn fróðleik að nú stefn- ir í að gefa þurfi út 15. bindi Borgfirskra æviskráa. Því ber að sjálfsögðu að fagna, því aldrei fáum við of mikið af ættarfróðleiknum, og betri mann til verks- ins en Guðmund Sigurð Jóhannsson hefði ekki verið hægt að fá. Við lítum því spennt til komandi binda af Borgfirsku æviskránum. Ritstjórinn Þuríður Kristjánsdóttir sagði frá útgáfu Borgfirskra æviskráa á janúarfundi Ættfræðifélagsins. Hún sagði viðauka og leiðréttingar,sem Guðmundur S. Jóhannsson ættfræðingur á Sauðárkróki vinnur að, svo viðamikla að allt stefni nú í að gefa verði út aukabindi, sem yrði það 15. i röðinni. (Ljósmynd Guöfinna Ragnarsdóttir) Það er enginn vandi að vera trúlofaður - en að vera í hjónabandi er ævistarf http://www.ætt.is 7 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.