Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2011, Side 15

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2011, Side 15
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2011 sagnaritun heldur en af öðrum héruðum þessa norræna menningarsvæðis sem náði raunar yfir nokkru stærra og annað svæði en það sem við í dag köllum Skandinavíu. Af hverju fræðimenn? I aldir hafa menn brotið heilann um af hverju þessi náttúra til fræðaiðkunar hafi stafað. Meðan frænd- ur okkar Færeyingar geymdu með sér hljómfall og fótmennt einstakra sagnadansa var texti sömu dansa varðveittur á pergamenti á íslandi. Meðan Norðmenn og Svíar byggðu og brenndu glæstar kirkjur og virki, áttu dreka og knerri stóra sem sögur fóru af, þá voru það Islendingar sem öðr- um fremur björguðu þessum verðmætum með miklu meira afgerandi hætti en nokkur borgarsmiður getur gert. Við festum lýsingar þessa á blað. A öldum þeim þegar örfáir íslendingar hleyptu heimdraganum voru það samt þessir mikið, mikið fáu, örfáu, sem skildu eftir sig fleiri heimildir heldur en fjöldi erlendra samferðamanna og er þó margsann- að það sem vinur minn doktor Haraldur Matthíasson sagði á mínum menntaskólaárum að útlendingar eru vissulega misjafnir eins og annað fólk. Jón Indíafari er einn þessara löngu gengnu landa okkar sem er trautt að skilja nema hafa þekkt íslenska fræðimenn í sveit, þessa einmana sál í sveitakytrunni sem skrifar. Guðrúnu frá Lundi, Magnús á Vöglum, Pál í Sandvík og Snorra í Reykholti. Jón þessi Olafsson var úr Djúpinu og fór ungur til Danmerkur og þvælist þaðan suður til nýlendu Dana á Indlandi. Frásögn þessa eina Islendings sem kem- ur til Indlands á 17. öld verður helsta og langbesta heimild Dana um nýlendu sína suður og þar fyrir utan að Jón lýsir dönskum borgarmannvirkjum af þeirri nákvæmni að enn þykir fengur að við rannsókn á 17. öldinni þar heima í borginni við Eyrarsund. Bölvaðir beinasnar Fræðaarfur íslenskra miðaldamanna, með Snorra Sturluson fremstan meðal jafningja, er í sögunni frægstur og mun einn sér halda nafni þessarar litlu ey- þjóðar á lofti um ókomin árþúsund. í þeim arfi er að finna meiri bóklegar heimildir um líf og hætti hinna germönsku forfeðra allrar norður Evrópu en meðal nokkurrar annarrar þjóðar. Og samt erum við smæstir og afskekktastir þessara þjóða. Þetta fer nú að skaga í lofræðu af þeirri gerð sem fluttar voru á nýliðnum blómadögum útrásarvíkinga, er það ekki? En bíðum við. Menn hafa um langan aldur velt fyrir sér hvað hafi ráðið þessum mun Islendinga og annarra skandinava. Jafnvel látið sér detta í hug að menningar- og gena- blöndun við kelta hafi ráðið hér mestu um að gera okkur að þessari sagnaþjóð. Hér hafi með gena- blöndun verið búin til einhver sérstök og einkar fær merkileg tegund, einhver homo neftóbakis sem skrif- ar allt sem hann sér og heyrir. Bjarni Harðarson telur að sagnahefð Islendinga stafi af einsemd og ,jákvæðum“ leiðindum í einangruninni á Islandi. I stað þess að ræða við nágrannabóndann sneri bóndinn sér að bókfellinu. Bjarni varpar fyrir róða þeirri hugmynd að Islcndingar hafi orðið sagnaþjóð vegna hagstæðrar gcnablöndunar Kelta og Norðmanna. Og þar með erum við ekki bara lentir á glapstig- um mannræktarfræðinnar, sem ég ráðlegg engum að halda inn á, heldur líka á villigötum sem fljótgert er að slá út af borðinu. Algerlega sambærileg blöndun átti sér stað í Færeyjum og í ýmsum norðurhéruðum Bretlandseyja. Kenningin gerir enda ráð fyrir að við íslendingar séum öðrum þjóðum vitrari og þessvegna svona duglegir við skriftir. Þegar ég heyri slíkt fimbulfamb verður mér hugsað til sveitunga míns Bergs gamla Jónssonar á Laug í Biskupstungum sem átti þar í Haukadal allar ættir sínar og ól sinn aldur. Kominn af því höfuðbóli og því fólki sem fyrst stofnaði skóla á Islandi. Þegar talið barst eitt sinn að sveitungum hans sagði Bergur blátt áfram og af einlægni þess sem aldrei tal- aði um hug sér: - Tungnamenn, þetta eru allt bölvaðir beinasnar, ég held ég ætti að vita það, búinn að vera með þeim í áttatíu ár. Við hin segjum þetta ekki upphátt en eigum, líkt og Bergur, bágt með að trúa að Islendingar séu öðr- um þjóðum vitrari, miklir eru þá beinasnarnir í öðrum sóknum. En ef ekki af viti og ekki af genum og varla iðjusemi, hvað er það þá? Af hverju kemur þetta? Byggðamynstur fremur en gen Til þess að svara slíkri spurningu verðum við að horfa til þess hvað er hér með öðrum hætti en meðal grann- þjóða okkar og jafnvel meðal þjóða yfirleitt. Hvað skilur okkur frá? Og þá erum við komin að upphafinu í þessu erindi, leiðindunum. Það sem skilur okkur fremur en nokkuð annað frá öðrurn þjóðum er byggðamunstrið. Það var ekki bara að á íslandi vantaði í þúsund ár borgir, án http://www.ætt.is 15 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.