Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2011, Síða 18
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2011
Guðjón Óskar Jónsson skrifar:
Suður heiðar
Margir, sem komið hafa að Geysi, munu hafa tekið eft-
ir bœ einum litlum með gamla laginu á afvikmim stað
út frá almannaleið upp í bogadreginni birkihlíð undir
Bjarnarfelli með fossandi lœkjum til beggja liliða
og greiðfœrum hallandi engjum niður undir Laugá.
Bærinn heitir Helludalur. Þar andaðist 15. apríl í
vor elzti maðurinn í Biskupstungum, merkur maður
og einkennilegur um margt. Hann hét Guðmundur
Magnússon. Skorti hann fjóra vetur í tírœtt, er liann
lézt, lxafði liann allan aldur verið í Biskupstungum.
Móðurfaðir hans, er Hallgrímur hét Jakobsson,
bjó í Böðvarsnesi í Fnjóskadal. Svo er sagt, að
hann hafi verið í frœndsemi við Þorstein sýslumann
Magnússon á Móeiðarhvoli og hafi sýslumaður boð-
ið honum barnfóstur, þegar mest kreppti að í móð-
urharðindunum. Tókst Hallgrímur þá ferð á hend-
ur suður í land með Margréti dóttur sína tíu vetra
og ætlaði að færa hana sýslumanni. En er þangað
kom, var sýslumaður látinn. Sneri Hallgrímur þá
norður aftur með dóttur sína. A leiðinni kom hann að
Austurhlíð í Biskupstungum. Þar bjuggu hjón vel efn-
uð, Guðmundur Magnússon og Kristrún Gísladóttir.
Þau buðu að taka Margréti litlu til fósturs og þáði
Hallgrímur það. Olst hún þar upp síðan og gift-
ist fimmtán árum síðar Magnúsi, syni þeirra hjóna.
Hann var manna vaskastur. Um hann er sú saga
sögð, að hann sótti einhverju sinni yfirsetukonu út í
Laugardal bar hana yfir Brúará og stökk með hana
í fanginu yfir gjána, þar sem brúin var síðar. Þau
Margrét bjuggu á Bóli og þar fœddist Guðmundur
sonur þeirra 20. maí 1818. Magnús varfæddur 1767.
Og það er óvenjulangur feðgaaldur, 1767 - 1918, þó
að dœmi séu til um lengri. Guðmundur missti móður
sína fjórtán vikna gamall og var í uppvexti ýmist með
föður sínum eða íAusturhlíð og Múla.
Svo hefjast eftirmæli um Guðmund Magnússon
bónda Helludal skráð af síra Magnúsi Helgasyni f.
1857, d. 1940, en síra Magnús var prestur Biskups-
tungnamanna frá 1884 - 1905. Eftirmælin birtust í
blaðinu Lögréttu 22. júlí 1914 en voru endurbirt í riti
Biskupstungnamanna, Inn til fjalla árið 1953.
xxx
Þorsteinn Magnússon sýslumaður Móeiðarhvoli var
f. 2.febr. 1714 d. 20. júní 1785.Konahans,Valgerður
Bjarnadóttir, var f. 1707 d. 26. apr. 1785. Þau voru
þremenningar og fengu konungsleyfi til hjúskapar.
Skyldleiki hjónanna var þessi:
1. Þórður Jónsson prestur Hítardal
f. 1609 d. 27. okt. 1670
~ Helga f. 1626 d. 16. ág. 1693 Árnadóttir lög-
manns Oddssonar
2. Guðríður Þórðardóttir hfr. Hólum Hjaltadal
f. 1645 d. 1707
~ Jón Vigfússon biskup
f. 1643 d. 1690.
3. Sigríður Jónsdóttir hfr. Espihóli (Stórahóli)
Eyjafirði 1703
f. 1669
~ Magnús Björnsson lögsagnari
f. 1664.
4. Þorsteinn Magnússon sýslumaður Móeiðarhvoli
1. Þórður Jónsson prestur Hítardal
~ Helga Árnadóttir
2. Þorsteinn Þórðarson bóndi Skarði Skarðsströnd
Dalasýslu
d. 15. des 1700.
~ Arnfríður Eggertsdóttir
f. 1648, hfr. Skarði búandi ekkja s.st. 1703
d. 29 ág. 1726,
3. Elín Þorsteinsdóttir hfr. Skarði
f. 1678 d. 14. marz 1746
~ Bjarni Pétursson ríki sýslumaður
f. 1681 d. 15. aprfl 1768.
4. Valgerður Bjamadóttir hfr. Móeiðarhvoli.
Ekki er ljóst, hver var skyldleiki Þorsteins sýslu-
manns við Hallgrím í Böðvarsnesi.
xxx
Guðmundur Magnússon bóndi Austurhiíð var f. 1737
s.st., sonur hjónanna, Magnúsar Rögnvaldssonar og
Helgu Ásmundsdóttur. Kristrún Gísladóttir var f.
1734 Austurhlíð, dóttir Gísla Arngrímssonar og k.h.,
sem líklega hefur verið Ragnheiður Greipsdóttir.
Börn Guðmundar og Kristrúnar voru:
1. Guðrún f. 1764 hfr. Austurhlíð svo Efra-Langholti
Ytrahreppi, d. 5. marz 1841.
~ Magnús Eiríksson f. des. 1763 d. 8. júlí 1846.
Um niðja þeirra sjá Víkingslækjarætt gamla
útgáfan bls. 480 - 509.
2. Magnús f. 1767. Hans verður getið síðar.
3. Þóra f. 1773, hfr. Brekku Biskupstungum, d. 27.
ágúst 1825.
~ Bjarni Þorsteinsson f. 1776 d. 17. jan. 1857
Múla.
Þau áttu nokkur börn.
xxx
Hallgrímur Jakobsson bóndi Böðvarsnesi varf. um 1745.
Hann kvæntist 26. des. 1773 Guðfríði Jónsdóttur.
Börn þeirra voru:
1. Guðrún sk. 12. sept. 1773 Böðvarsnesi. Hefur
dáið ung.
http://www.ætt.is
18
aett@aett.is