Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2011, Side 24
FRÉTTABRÉF
^S^TTTFRÆÐIFÉLAGSINS
Ármúla 19, 108 Reykjavík, Heimasíða: http://www.ætt.is, Netfang:aett@aett.is
Opnunartími
Þjóðskjalasafns
Lestrarsalur Þjóðskjalasafnsins er
opinn sem hér segir:
Kl. 10:00- 17:00 þriðjudaga,
miðvikudaga og fimmtudaga allt árið.
Kl. 10:00 - 16:00 á föstudögum á vetrartíma
(1. september til 31. maí).
Kl. 10:00 - 14:00 á föstudögum á sumartíma
(1. júní til 31. ágúst).
Sumarlokun og lokun yfir hátíðar er auglýst
sérstaklega.
Skjöl eru afgreidd tvisvar á dag úr geymslum
safnsins, kl. 10:30 og 14:30.
Opið hús
Munið OPIÐ HÚS alla miðvikudaga frá
kl. 17:00-19:00 að Ármúla 19,2. hæð.
Allir eru velkomnir með spumingar og svör,
áhuga og gott skap. Þar er margt spjallað og
alltaf heitt á könnunni. Munið að þar eru sér-
fræðingar á hverju strái sem elska að tala um
ættfræði og veita fúslega aðstoð.
Nýtið ykkur bókasafnið, tölvurnar og forritin
sem hafa að geyma ótal ættartengsl. Komið og
kíkið í nýjar ættfræðibækur.
Bóksalan er opin á sama tíma og Opið hús. Það
gengur óðum á hin ómissandi manntöl og þau
eru á góðu verði.
STORLÆKKAÐ
YERÐ Á MANNTÖLUM
Nú er lag að kaupa manntölin. Þau em aðeins til í
takmörkuðu upplagi og verða ekki endurútgefin.
Mörg hefti og bindi em nú þegar uppseld. Ákveðið
hefur verið að stórlækka verðin á manntölunum svo
allir geti eignast þessi bráðnauðsynlegu hjálpartæki
við ættfræðirannsóknir.
Tilvalið er að gefa jafnt ungum sem öldnum
manntöl í afmælisgjafir.
Verðskráin lítur svona út:
Manntal 1910
1. bindi: Vestur-Skaftafellssýsla, 1.000 kr
2. bindi: Árnessýsla, 2.000 kr
3. bindi: Rangárvallasýsla, 2.000 kr
4. bindi: Gullbringu- og Kjósarsýsla, 2.000 kr
5. bindi Reykjavík 1 og 2, 8.000 kr
Manntal 1845
1 .-3. bindi 1.000 kr hvert bindi
Manntal 1816
6. hefti 500 kr (allt sem til er)
Manntal 1801
3. bindi Norður- og Austuramt 1.000 kr (allt sem til
er)
Hægt er að fá þessi manntöl á skrifstofu félagsins
Ármúla 19 á Opnu húsi sem er alla miðvikudaga
kl. 17:00 - 19:00. Einnig má panta þau í síma
867-4347 eða í tölvupósti á netföngunum aett@aett.
is og gudfragn@mr.is.
Febrúarfundur
Aðalfundur Ættfræðifélagsins verður haldinn fímmtudaginn 24. febrúar kl. 20:30 í húsi Þjóðskjalasafnsins að
Laugavegi 162,3. hæð Reykjavík.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf
Kaffi og spjall
u^ að^únd^tör^^
Marsfundur
Fimmtudaginn 31. mars flytur Sigríður Hjördís Jörundsdóttir, sagn-
fræðingur á Handritasafni Landsbókasafns, erindi sem hún kall-
ar Konurnar í Olafsdal. Þar skyggnist hún inn í líf og starf kvennanna
við Olafsdalsskólann. Fundurinn verður að venju haldinn í húsi Þjóð-
skjalasafnsins að Laugavegi 162, 3. hæð Reykjavík.
Ættfræðifélagið vill vekja athygli félagsmanna á því að nú stendur yfir í
Þjóðarbókhlöðunni sýning um Ólafsdalsskólann, í tilefni þess að árið 2010
voru liðin 130 árfrá stofnun skólans. Sýningin stendur út marsmánuð.
Þorgils Jónasson
Kambaseli 44
109 Reykjavík