Alþýðublaðið - 21.01.1924, Side 1

Alþýðublaðið - 21.01.1924, Side 1
Öefið út Bf Alþýðnflokknoin 1924 Mánudaglnn 21. janúar. 17. tölublað. Eriend síraskejti. JaínaBarmannafélag Islands heldur fund í Bávunnl (nlðri) þri&judaginn 22. jan. 1924 kl. 8 síðáegis. , Umræðuefni: Bæjarstjómarkosningarnar. Fyrstu ræðumenn: FulJtrúaefni Alþýðnflokksins. Allir Alþýðuflokksmenn velkomnir á fundinn, meðan húsrúm leyflr. F. h. stjórnar fólagsins. Jón Baldvinsson. Khötn, 19. jan. Ylðnrkenning Rússastjórnar. Frá París er símað: Rdðuneyti Poincarés hefir lýst yfir því, að þó að til þess komi, að Bretar viðurkenni ráðstjórnina í Rúss- landi að iögum, muni Frakkar eigi að síður halda fast við kröfur sínar og skilmála fyrir því að veita henni viðurkenningu. En skil- yrðin eru þau, að Rússar viður- kenni skuidir þær, sem þeir stóðu í við Frakka fyrir striðið, að ráð- stjórnin skili aftur þeim eignum franskra rikisborgara í Rússlandi, sem hún gerði upptækar eftir byltinguna, og að Rússar hafi engan tilverknað í frammi í því markmlði að auka stefnu meiri- hluta-jafnaðarmannanna rússnesku fyigi út á við. Stjórnarráðstafanir og gengi. í franska þinginu hafa komið fram íyrirspurríir til stjórnarinnar viðvíkjandi ráðstöfunum hennar til þess að festa gengi frankans. Stjórnin bar fram tillögu um, að frestað skyldi að taka fyrirspurn- irnar á dagskrá, og var þessi til- laga samþykt með 330 atkvæðum gegn 204. Má af þessu ráða, að meiri hluti þingsins aðhyllist í raun og veru stefnu stjómarinnar í gengismálinu og ráðstafanir þær, er hún gerir. Eigi að siður féll frankinn mjög í* verði á kauphöll- inni eftir atkvæðagreiðsluna, Chnrehill og vantraustið. Frá London er símað: Winston Churchill fyrrv. hermálaráðherra hefir eggjað frjálslynda flokkinn á að greíða atkvæði á móti van- traustsyfirlýsingu þeirri, er verka- mannaflokkurinu hefir komiðfram með á stjórnina, en talið er, að ekkert tillit verði tekið til þeirrar áskórunar, fjóðrerjar og sérfræðinga- nefndin. Að því, er símað er frá Berlín, er forstjóri ríkisbank'ms þýzka og ýmsir yfirmenn úr ráðaneytunum farnir til Parísar til þess að vera sérfræðinganeíndunum til aðstoðar við rannsóknina á fjárhag Þýzka- lands og veita þeim upplýsingar. Innlend tíðindi. (Frá Fréttastofunni.) Stykkishólmi, 17. jan. Utsvðr í Styhbishólmi. Aukaútsvör við sfðustu nlður- urjötnun hér nema alls rúmum 26 þúsund krónum, en gjald- endur eru 244. Hæsta útsvar er á Jang og Rils 6200 kr., á Sæmundi Halldórssyni 3000 kr., Kaupfélaginu 1500 kr. og Chris- teusen lytsalá 1800 kr. Akureyri 19. jan. Dálítili síldarafli er hér; t. d. veiddust i gær 400—500 tuDnur í kastnótir úti á móts við Skjald- arvfk hér rétt fyrir utan. Lítið eitt aflast einnig af þorski. Taugaveiki héfir verið að stinga sér niður í Eyjafirði, en tilfellin eru tá og veikin væg. Meðal þeirra bæja, er veikln hefir komið á, er Eyrarland. Er Lesið! jFiskur sendur heim, hvert sem er. Jón Magnússon fisksaii. Sfmi heima 1354, sími á fisksölutorginu 1402. þar sóttkví og ekki ósennilegt, að Einar Árnason alþingismaður tefjist frá þingstör um framan af þingi vegna hennar. Stúlkan Sigríður Pálsdóttir, sem hvarf fyrir skömmu, hefir ekki fundist enn, og telja menn vist, að hún sé ekki á lífi. Þingmálaíund ætla þingmenn kjördæmisins áð halda á Akur- eyri annan laugardag, Mæta þar kosnir fulltrúar úr öllum hrepp- um sýslunnar, /jórir fyrir hverc, og verða þeir kosnir á deildar- tundum kaupféiagsins. Vestmarnaeyjum 19. jan. Jón Kristgeirsson bæjarfógeta- fulltrúi og væntanlegt bæjarfull- trúaefni fyigisflokks Karls Ein- arssonar hefir stefnt 6 bæjárfull- trúum fyrlr að hafa neitað að sitja bæjarstjórnarfund með hon- um ssm oddvita. Enn fremur hefir hann stefnt ritstjóra >Skjald- ar< iyrir að birta yfirlýsingu bæjarfulltrúanna um þetta mál í blaðinu, og var yfirlýslngln þó birt orði étt og athugasemdalaust. Nætnrlæknlr f nótt Magnús Póturssou Grundarstíg io. ]0Í_

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.