Landneminn - 01.07.1955, Blaðsíða 11
JOnN K E E » :
Frá rfissnesku byltinpnni
Það rökkvaði óðum og hjá Nevskí
sást hvar kom löng tvöföld röð hjól-
reiðamanna með byssur um öxl.
Þeir námu staðar. Mannfjöldinn
ruddist að þeim og spurði þá spjör-
unum úr.
„Hverjir eruð þið? Hvaðan kom-
ið þið?“ spurði aldraður digur
maður og reykti vindil.
„Tólfti herinn; frá vígstöðvunum.
Við komum til að styðja ráfiin gegn
bölvaðri borgarastéttinni!"
Ofsaleg hróp. „Bolsévískir her-
l’ögreglumenn! Bolsévískir kósak'k-
ar!“
Smávaxinn liðsforingi í leður-
jakka kom hlaupandi niður þrepin.
„Setuliðið er að snúast,“ hvíslaði
hann að mér. „Þetta er upphafið
d endalokum bolsévíkka .Langar yð-
ur að sjá straumhvörfin? Haldið
áfram“. Hann hljóp við fót upp
Mikaílovskístrœtið, og við urðum
samferða.
„Hvaða hersveit er það?“
„Brunnóvíkarnir ...“ Hér var al-
varlegt á seyði. Brunnóvíkarnir voru
brynvagnasveitirnar, undir þeim var
allt komið. Sá sem réð brunnóví'k-
unum réð borginni. „Fulltrúar frá
Björgunarráðinu og dúmunum hafa
ávarpað þá. Þeir eru á fundi núna
til að taka ákvörðun. „Hvers konar
ákvörðun? Hvorum megin þeir ætli
að berjast?“
„0, nei. Ekki er nú svo. Það er
engin leið að fara þannig að þeim.
Þeir munu aldrei berjast móti
bolsévíkum. Þeir greiða atkvæði
með hlutleysi — en þá munu júnk-
ararnir og kósakkarnir —.“
John Reed var ameriskur að ætt, vel
menntur og skáldmæltur. Hann reit margt
uim dagana, bæðl ljóð og blaðagrelnar.
Bækur relt hann einnig en frægust hef-
ur orðið frásögn hans af rússnesku byltr
ingunni ,,Tíu dagar, sem hristu heim-
inn,“ enda má segja, að hún sé sigilt
meistaraverk í blaðamennsku. E>egar
Lenin las hana, varð hann svo hrifinn,
að hann kvaðst viija sjá þessa bók þýdda
á allar þjóðtungur heims.
Kafli sá, sem hér íer á eítir lýsir vel
hve lágstéttabyltingar eru lýðræöislegar.
Dúma: rússneskt þlng.
Dauðasveitirnar: Þær myndaði Ker-
enski til að rétta við agann i gamla
rússneska hemum. 1 þeim voru aðallega
synir efnamanna.
Júnkarar: hersveitir myndaðar af llðs-
foringjum.
Kadcttar: ihaldssamur ílokkur.
Kaicdín og Korniloff voru einhverjir
lækktustu gagnbyltingarforingjar á þess-
um tima.
Korcnskf var forsætisráðherra bráða-
blrgðarstjórnarinnar, sem bolsévíkar
steyptu af stóli,
Mcnsévíkar voru rússnesku sósíaldemó-
kratarnir nefndir.
Þjóðbyltingarmcnn voru ihaldssamur
bændaflokkur.
Iíjörgnnarráðið: Þegar í öll skjól var
fokið, stofnuðu öll gagnbyltingarsinnuð
öfl Rússlands nefnd til að vera í farar-
broddi baráttunnar gegn bolsévlkum, og
var oftast nefnd Björgunárráð ættjarðar-
innar og byltingarinnar.
Villimannasveitin var hersveit skipuð
mönnum frá Mlð-Asíu og alræmd fyrir
grimmd.
Agústsævintýrið var misheppnuð gagn-
byltingartliraun sem aðallinn og borg-
arastéttin gerðu í ágúst 1917. Korniloff
var foringl hennar.
Hlið hins mikla Mikailovskí reið-
skóla gein við kolsvart. Tveir verðir
reyndu að stöðva okkur, en við þust-
um hjá og létumst ekki heyra reiði-
legar áminningar þeirra. Inni log-
aði aðeins á einu kolbogaljósi uppi
undir þaki hins geysistóra forsals,
en háar súlur hans og gluggabogar
hurfu í rökkrinu. Ægilegir, dökkir
brynvagnar voru meðfram veggjun-
um. Einn stóð sér miðsvæðis, og
kringum hann höfðu safnazt um tvö
þúsund veðurteknir hermenn, og lá
við, að þeir hyrfu í þessari geysilegu
byggingu. Tylft manna, liðsforingj-
ar, formenn hermannanefndanna og
ræðumenn höfðu verið settir ujip á
vagnþakið, og frá fallbyssuturnin-
um hélt hermaður ræðu. Það var
Kanjúnoff, sem hafði verið forseti
landsþings brunnóvíka, haldið síð-
astliðið sumar. Hann stóð þama, lið-
legur maður laglegur, klæddur leð-
urjakka með axlaskúfum liðsfor-
ingja og mælti ákaft með hlutleysi.
„Það er hræðilegt," sagði hann,
„fyrir Rússa að vega rússneska bræð-
ur sína. Það má aldrei verða, að þeir
hermenn berjist innbyrðis, sem sneru
bökum saman gegn keisaranum og
sigruðu útlenda óvini í orustum, sem
lengi munu verða uppi í sögunni.
Hvað varðar okkur hermennina um
orðaskak stjórnmálaflo'kkanna? Það
eru ekki mín orð, að bráðabirgða-
stjórnin hafi verið lýðræðisleg
stjórn, við viljum enga sambræðslu
við borgarastéttina, ég held nú síð-
ur. En við verðum að fá stjórn allra
lýðræðisflokkanna sameinaðra eða
Rússland er glatað. Fáist slík stjórn
þá þarf ekki lengur borgarastyrjöld
og bræðravíg.“
Þetta hljómar skynsamlega. Hinn
LANDNEMINN 11