Landneminn - 01.07.1955, Side 18

Landneminn - 01.07.1955, Side 18
BALDUR ÓSKARSSON: Félagsfræði í hnotskurn Til er tvenns konar hyggja, ein- staklingshyggja og félagshyggja. Bezt er að halda þeim aðgreindum og athuga hvora fyrir sig. Snúum okkur fyrst að einstaklingshyggj- unni. Hún byggist fyrst og fremst á þeirri tilhneigingu að hokra og hokra og hugsa fyrir sig. Menn reyna að viða að sér og sínum, eign- ast framleiðslutæki, til að taka aðra menn í þjónustu sína og græða á, vinnuafli þeirra, með því að borga þeim minna en þeir sjálfir bera úr býtum. Þeir leggja peninga á vöxtu og taka tvo fyrir einn og kalla það guðsgjöf, sem þeir hafa stolið. Þannig myndar nútímaþjóðfélag tvær stéttir: efnamenn og öreiga.'í iðnaðarlöndum eru smíðaðir margs konar eigulegir hlutir, og þegar sala þeirra stöðvast, vegna fátæktar eða offramleiðslu, er byrjað að fram- leiða hergögn. Nú er slegið á streng þjóðernis og ættjarðarástar, en klerkar og heimatrúboðsmenn flytja ræður á hverjum sunnudegi um hinn þrönga veg, sem liggur til lífsins og fá soltinn vinnulýðinn til að sætta sig við kjör sín og slá af syndsamlegum kröfum sínum um hærra kaup. Brúsann borgar „bisn- isinn.“ Feitir verksmiðjueigendur í ráðherrastétt ráða nú ráðum sínum og áður en langt líður fréttist að einhver hafi verið drepinn. Þetta er auðvitað vegna þess að vondir menn — einhvers staðar í öðru landi — sitja á svikráðum og nú er um að gera að verða fyrri til. Styrj- öld er hafin. Fátæku verkafólki og bændum er sigac) fram, til að drepa aðra fátæklinga. Þeir eru ruglaðir og ráðvilltir af þjóðernispípi og 'guðsorðainngjöf. Vita ekki, að hinn sameiginlegi óvinur stendur að baki þeim og sigrar. Vita ekki, að þetta eru brœðravíg. Vita ekki, að hlakk- andi auðvaldsöflin ,takast í hendur yfir líkum látinna öreiga. Þetta eru ávextir einstaklings- hyggjunnar í stórum dráttum sagt. Hana skulum við því merkja með þrem svörtum krossum. Félagshyggjan er annars eðlis. Hún lítur fyrst og fremst á menn- ina sem félagsverur, sem þúrfi á öllu sínu afli að halda, ekki til að berjast hverjir við aðra, heldur til að berjast við hina sameiginlegu mann- félagsóvini: fáfræði, fátækt, sjúk- dóma og erfitt umhverfi — svo að nokkrir séu nefndir. Hún telur það ekki ná nokkurri átt, að 10% mann- kynsins eigi stóreignir, aðeins vegna þess, að 90% eiga ekki neitt. Hún sættir sig ekki við, að milljónir manna deyi úr hungri árlega, með- an aðrar milljónir deyja af ofáti eins og nú er sannað samkvæmt útreikningum icísindamanna. Hún myndar vísindalegan grundvöll fyr- ir alþjóðlegt samfélag, sem veitir þegnum sínum félagslegt öryggi og frelsi. Ekki frelsi til að féfletta ná- unga sinn og taka tvo fyrir einn, en frelsi til að lifa og njóta hinna já- kvæðu mannlegu eiginleika. Hún dregur úr freistingunni og hefur því mannbætandi uppeldisgildi. Þróun- armöguleikar hennar eru ótæmandi; takmark hennar er hugsjón Shelleys. „Falsgerfið hefur fallið, eftir stendur maðurinn, frjáls, án veldis- sprota og viðja, jafnborinn öðrum, ættlaus, stéttlaus, þjóðlaus, maður án ótta, tilbeiðslu eða tignar, herra síns eigin hugar.“ Þrumuguðinn ég sjálfur á jörðinni guðaði í RÍuffsa á næsta hofi við grafreit dauðra þegar rauða sólin var að hníga á vit jökulsins helga en har bjó þrumuguðinn gott kvöld róttæk er sólin sagði ég sjálfur á jörðinni og lét skína i geislavirkar tennur ég sé glundroðann svaraði þrumuguðinn og augu hans skutu eldingum gullkista hafsins hefur sigrað ,,guð vors lands“ mcð sínu lagi og syndakvittunum í sama bili sá ég sjálfur á jörðinni fólk drífa að og brátt var fokið í flest skjól hvað hafa trúarbrögðin gert fyrir mannkynið spurði ég en fólkið á jörðinni sagði ha .... sem liljómaði líkt og byrjunin á kveðju mótmælenda ha .... ltu kjafti þrumuguðinn hló en ég sjálfur á jörðinni setti upp sólgleraugu þegar átta ára barn hrópaði í lciðslu AA forseti var kosinn í dag Jónas E Svafár 18 LANDNEMINN

x

Landneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.