Landneminn - 01.10.1955, Blaðsíða 2
*NÓltELSVE]R»LAITNASKALDIÐ
Hallclor
Kiljan
Laxnc§s
9L
slenzk œska samfagnar þér.
Með bókum þínum hefur þii
opnað augu æskunnar fyrir bar-
áttu alþýðunnar, striti hennar og
stríði við óblíða náttúru og rang-
látt þjóðfélag. Með list þinni
hefur þú kveikt þann eld, sem
skírast logar á altari íslenzkrar menningar. Eins og þú hefur sótt efnivið þinn til al-
þýðunnar og brugðið Ijóma yfir baráttu fólksins í landinu þannig hefur íslenzk
alþýða teygað úr verkum þínum þrótt, sem aukið hefur stolt liennar og stuðlað að
sigrum liennar. Þess vegna þakkar öll þjóðin þér, því að þinn sigur er hennar sigur.
Hún er stolt af því, að þú skulir Jiafa flutt öllum heiminum þann boðskap, sem íslenzk
alþýða hefur alið við brjóst sitt í þúsund ár. Og um leið og þú hefur sigrað heiminn
hefur íslenzkur málstaður sigrað, íslenzk menning risið hærra en nokkru sinni fyrr.
Meðan æskan og þjóðin öll á slíkar bækur munu engar óheillablikur slæva sókn henn-
ar til betri lífskjara og endurheimt íslenzks sjálfstæðis.
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN.
L.