Landneminn - 01.10.1955, Qupperneq 7

Landneminn - 01.10.1955, Qupperneq 7
FYLKINGARFRÉTTIR XIV. þing ÆskulýSsfylkingarinn- ar var haldið í hinu nýja húsi Sósíal- istaflokksins að Tjarnargötu 20 dag- ana 30. september til 2. október. Aðalverkefni þingsins var: að marka starísgrundvöll næsta starfs- árs. Áherzla var lögð á forustuhlutverk Æ. F. í baráttunni gegn hernáminu Og hinum ýmsu hagsmunamálum al- þýðuæskunnar. Þátttaka var góð og voru mættir allmargir fulltrúar deilda utair af landi, en nokkrir komust ekki vegna samgönguerfiðleika. Þrír fullteúar Sósíalistaflokksins sátu þingið, þeir Einar Olgeirsson, Eggert Þorhjarn- arson og Magnús Kjartansson. Idaraldur Jóhannsson, fráfarandi forseti, setti þingið með stuttri ræðu. Bauð hann fulltrúa velkonma og hvatti þá til að ræða málin af ein- urð, svo umræður yrðu frjóar og árangursríkar. Þessi voru kosin starfsmenn þings- ins: Forsetar: Guðmundur J. Guð- mundsson, Sigurjón Einarsson og Bjarni Bergsson. Ritarar: Baldur Vilhelmsson, Jóna Þorsteinsdóttir og ísak örn Hrings- son. Fréttaritarar: Ingi R. Helgason og Gunnar Guttormsson. Á þinginu störfuðu þessar fasta- nefndir: Stjórnmálanefnd, félags- málanefnd, laganefnd og uppstill- inganefnd. Þegar kosningu starfsmanna og nefnda var lokið voru fluttar skýrsl- ur deilda og' skýrsla sambandsstjórn- ar og umræður hafnar um þa-r. Síð- an var fundi frestað til laugardags, en þá hófst þingfundur með ávarpi frá Sósíalistaflokknurn, sem Eggert Þorhjarnarson flutti. Því næst hófust umræður um við- horf og aðstöðu ungs fólks í land- inu. Voru þær frjóar og kom margt athyglisvert fram, svo sem í sam- handi við skemmtanalíf unga fölks- ins, aukið starf méðal verkalýðsæsk- unnar, unr húsnæðismál unga fólks- ins og hinn sjálfsagða rétt kvenna til launajafnréttis á við karla. Marg- ar ályktanir og tillögur komu fram og hafa sumar þeirra þegar birzt í Þjóðviljanum, en aðrar munu birt- ast í Landnemanum eftir því sem rúm leyfir. Á laugardagskvöldið var fjölmenn kvöldvaka í Þórskaffi. Þar flutti Jó- hannes skáld úr Kötlum stórmerka ræðu, Karl Guðmundsson leikari las upp og sýnd var kviknrynd frá verk- fallinu í vetur. Milli þessara atriða var sungið og var kvöldvakan hin ánægjuleg- asta. Á sunnudag hófst þingfundur kl. 10 og stóð liann til kl. þrjú um nótt- ina með stuttum matar- og kaffihlé- um. Þá flutti Guðmundur Magnússon fulltrúi Æ. F. í Samvinnunefnd ísl. æsku skýrslu sína. Skýrði hann frá þátttöku ísl. æsku i V. Heimsmóti æskunnar, sem haldið var í Varsjá s.l. sumar og öðrum málum, sem nefndin hafði fjallað um. Þá var og rætt um starf og skipu- lag Æ. F. og Landnemann, en grund- völlur umræðnanna voru skýrslur sambandsstjórnar, deilda, ritstjóra Landnemans og reikningar. Stóðu þessar umræður fram á kvöld. Þegar afgreiddar höfðu verið hin- ar ýmsu ályktanir og tillögur er fram komu á þinginu hófst kosning nýrrar sambandsstjórnar. Voru þessi kosin: Framkvœmdanejnd: Forseti: Böðvar Pétursson afgreiðslu- maður. Varaforseti: Adda Bára Sigfúsdóttir, veðurfræðingur. Ritari: Sigurjón Einarsson stud. theol. Gjaldkeri: Bogi Guðmundsson við- skiptafræðingur. Meðstjórnandi: Jóhannes Jónsson verkamaður: ASrir í sambandsstjórn: Baldur Geirsson 1. varam. framkv.- nefndar. Gísli B. Björnssson 2. varam. framkv.nefndar. Brynjólf- ur Vilhjálmsson, Björn Sigurðs- son, Einar Gunnar Einarsson, Guð- mundur J. Guðmundsson, Guð- mundur Magnússosn, Ingi R. Helgason, Ingvaldur Rögnvalds- son, Jóna Þorsteinsdóttir, Jónas Hallgrímsson, Kjartan Ólafsson. Varamenn í sambandsstiórn: Sigurður Guðgeirsson, Hannes Vig- fússon, Baldur Vilhelmsson. EndurskoSendur: Haraldur Jóhannsson og Sigurður Guðgeirsson. Til vara: ísak Öm Hringsson. Vegna fjarveru hins nýkjörna for- seta ávarpaði varaforseti Adda Bára Sigfúsdóttir þingið nokkrum hvatn- ingarorðum og sagði síðan XIV. þingi Æskulýðsfylkingarinnar slitið. Jónd Þorsteinsdóttir. LANDNEMINN 7

x

Landneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.