Landneminn - 01.10.1955, Síða 9

Landneminn - 01.10.1955, Síða 9
Hilbrigð viðleitni til að skapa sér efnalegt öryggi mun flestum í blóð borin. Þjóðfélag eins og okkar er einkennandi fyrir skort á slíku ör- yggi fyrir allan þorra manna. Ótt- inn við atvinnuleysi og örbirgð er jafnvel talinn nauðsynlegur til að knýja einstaklingana lil sífellt auk- inna afkasta. Aðstaða kapítalista er því sterkari sem öryggisleysi vinn- andi stétta er meira. Þetta eru al- kunn og einföld sannindi. í ljósi þessara sanninda hefur al- þýðan 'byggt upp samtök sín mcð miklum átökum og fórnum til að bægja frá skorti og neyð og lil sókn- ar fyrir aukinni efnalegri velmegun. Því aðeins getur alþýða manna vænzt mikils árangurs í hagsmuna- baráttu sinni að hún hlúi að sam- tökum sínum og standi um þau trú- an vörð. Og hér eru samvinnufélög- in ekki undanskilin. Tilgangurinn með starfi þeirra er eða a a. m. k. að vera sá að auka efnalegt öryggi hinna vinnandi stétta. Hér í Reykjavík starfar KRON að því markmiði að bæta hag allra fé- lagsmanna, meir en 5500 að tölu, með því að sjá þeim fyrir sem beztum vörum á sem vægustu verði. — Um það eru sjálfsagt skiptar skoðanir, hvort KRON hafi verið vel rekið á undanförnum árum, en um hitt verð- ur tæpast deilt, að félaginu þarf að vaxa svo fiskur um hrygg, að það verði öflugt hagsmunátæki reyk- vískra alþýðuheimila. Á undanförn- um árum hefur félagið veitt þeim margháltaðan stuðning, ef til vill Bókabúð kbon, Bankastrætí 2. Félagið hefur frá stofnun úthlutað til félagsmanna sinna meira en hálfri annarri milljón og veitt verkalýðn- um beinan stuðning í kjarabarátt- unni. Það er fyllsta ástæða fyrir alla góða verkalýðssinna að rifja það upp fyrir sér, að hvaða gagni félag- ið geti komið við að varðveita fengn- ar kjarabælur, ekki sízt núna þegar ríkisvaldið Ieggur sig í framkróka um að gera þær að engu. Enda þótt ástæður séu nú að ýmsu leyti erfiðar, er vissulega ástæða til að hefja öfluga sókn fyrir KRON. Það nægir ekki, að framkvæmda- stjórn félagsins taki viðfangsefnin föstum tökum og keppi að því að auka hagkvæmni í rekstrinum; það þarf líka að koma til aukinn áhugi félagsmanna fyrir málefnum þess og afkomu á hverjum tíma. Hér geta ungir sósíalistar lagt hönd að verki. Þeir þurfa að gerast meðlimir KRON og ötulir talsmenn þess meðal unga fólksins í bænum. Framtíð félagsins er komin undir því, hvaða hugmyndir það gerir sér um félagið, hvort það er fúst lil að veita því stuðning. Ungir sósíalistar og aðrir samvinnumenn meðal æskunn- ar þurfa því að taka höndum saman og gera hlut félagsins sem mestan. BOGI GUÐMUNDSSON, viðskiptafrœðingur: KKO\: Hagsmunasamtök reykvískra alþýðuheimila Boffi Guðmundsson. hefur það verið mikilvægast, að fé- lagið hefur verið sívirkt verðlags- eftirlit, myndað eins konar varnar- garð gegn okurhneigð kaupmanna. LANDNEMINN 9

x

Landneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.