Landneminn - 01.10.1955, Side 10

Landneminn - 01.10.1955, Side 10
„Þar er allt á nppleið...“ Viðtal við íorseta Æ. F. nÝkominn úr Kínaför. Fimm manna æskulýðssendinei’ncl íslenzk hefur verið á ferðalagi um Kína undanfainar vikur í boði Sam- bands lýðræðissinnaðrar æsku, og er formaður sendinefndarinnar, Böðvar Pétursson, forseti Æskulýðsfylking- arinnar, nýkominn heim úr förinni, en aðrir nefndarmenn á leiðinni frá Höfn með Gullfossi. Landneminn hitti Böðvar að máli rétt áður en ritið fór í prentun, og innti hann lauslega frétta af ferðum þeirra kumpána og tók af honum loforð um ýtarlegri grein um Miðríkið mikla síðar. I Peking. — Við komum til Peking hinn 26. september, segir Böðvar, eftir 12 daga flugferð um Danmörk, Sví- iþjóð, Finnland og Sovétríkin, en þar af fór reyndar heil vika í bið í Kaupmannahöfn eftir hentugri ferð austur. Á flugstöðinni í Peking vai okkur fagnað af fjölmenni kínversks æskufólks. Meðan við dvöldum í Peking bjuggum við á Friðarhótel- inu, sem er vegleg nýtízku bygging með öllum hugsanlegum þægindum, og voru okkur fengnir þrír ensku- mælandi túlkar til leiðsögu og fyrir- greiðslu. Við dvöldum í Peking til 7. októ- ber og notuðum tímann rækilega til að skoða hið markverðasta í borg- inni, svo sem Gamla markaðinn, Böðvar Pétursson. Velrarhöllina, Keisarahöllina fornu, sem nú hefur verið gerð að opin- beru safni. Þar var sérstök sýning á gjöfum, sem kínverjum hafa borizl eftir lýðfrelsunina víðs vegar að úr heiminum. Þar var m. a. skápur með gjöfum frá Islandi, málverkabókum Kjarvals, Ásgríms og Jóns Stefáns- sonar, Hliði hins himneska friðar eftir Jóhannes úr Kötlum o. fl. í Peking skoðuðum við einnig sýningu um náttúruauðævi Kína: var þai lögð áherzla á hinar gífurlegu auð- lindir landsins og þá stórkostlegu möguleika, sem þær skapa þjóðinni. Eins og við vitum hafa heimsvalda- sinnar hamrað á því um áratugi og aldir, að þjóðin væri allt of fjöl- mena til að geta lifað mannsæmandi lífi í landi sínu. Þessari sýningu er fyrst og fremst ætlað að hnekkja þeirri lævíslegu firru. Hingað sækir æskan trú á landið, sem hún byggir, og framtíð þjóðarinnar. Hjá Sjú En-læ. Að kvöldi hins 29. september vor- um við bocðnir til veizlu hjá Sjú En- læ ásamt sendinefndum rösklega 60 þjóða, og sátu veizluna um 2200 gestir. Þetta var matarveizla með dýrlegum krásum. Sjú hélt þar stutta ræðu. Að snæðingi loknum var stig- inn dans. — Gömlu eða nýju dansarnir? — Nýju dansarnir. — Djass? — Nei. Þjóðhátíð. — Á þjóðhátíð'ardaginn 1. októ- ber vorum við að sjálfsögðu við- staddir hátíðahöldin. Þau hófust við Hlið hins himneska friðar kl. 10 um morguninn með skrúðgöngu, sem stóð til klukkan tvö, eða í fjórar klukkustundir. Alls mun yfir hálf milljón manna — langflest ungt fólk úr hinum ýmsu starfsgreinum — hafa tekið þátt í göngunni, og var það stórfengleg sjón. Kl. 4 var er- lendum æskulýðsnefndum haldin veizla í Pekinghótelinu, og stóð hún í 5 klukkustundir. Úr veizlunni fór- 10 LANJÐNEMINN

x

Landneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.