Unga Ísland - 01.03.1908, Blaðsíða 1
Mesti bindindisfrömuður landsins.
Vel virðist það eiga við að minn-
ast með örfám
orðum þess
manns, sem mest
og bezt hefur
starfað í þarfir
bindindisins á
Islandi, á átta-
tíu ára afmæli
hans, og færa
lesendum U. í.
mynd hans, en
sá maður er
Magnús prestur
Jónsson, síðast í
Laufási i Þing-
eyjarsýslu.
Hann er
fæddur í Krist-
nesi í Eyjaíirði
31. marz 1828.
Gekk liann í
lærðaskólann og
þá prestaskólann og útskrifaðist það-
an 1857 og vígðist sama ár að Múla
í Þingeyjarsýslu, en að Laufási kom
hann 1883 og bjó þar til dauðadags,
19. marz 1901. Hann var ávalt vakinn
og soíinn í starf-
semi fyrir bind-
indismálið,stofn-
aði hann bind-
indisfjelag og
ræddi málið
mjög á fundum
og í blaðagrein-
um, skrifaði
liann þá einnig
í útlend blöð,
svo sem »Mann-
vininn« norska.
Höfuð bindind-
isrit hans er
» Bindindisfrœði
fyrir Islendingaa,
komu út afhenni
tvö stór heíti
(412 bls.)á sjálfs
hans kostnað, en
útgáfan var hon-
um svo dýr, að hann gat ekki lokið
við þá bók. Hjer er upphaf á öðru