Unga Ísland - 01.02.1938, Blaðsíða 18
28
VNGA ÍSLAND
»Nei, nei«, sagði gesturinn, »ég
hef aldrei smakkað svona góðar
kökur. Þú ættir að kenna mér að
búa þær til.«
»Það skal ég gera,« sagði litla
frúin og stóð upp um leið til að
hella aftur í bollann hjá gestinum.
»Nei, þakka þér fyrir, góða frú,«
sagði gesturinn. »Ég er orðin svo
mett, að ég get alls ekki drukkið
meira.«
Það var líka gott fyrir litlu hús-
móðurina, því að hún varð að eta
og drekka fyrir gestinn sinn. Hún
varð auðvitað líka að tala fyrir
hann, því að brúðan, hún Lísa, get-
ur hvorki etið, drukkið né talað.
Hún opnar aldrei munninn.
Betur svarað en spurt var.
Presturinn: ,,Ég skal gefa þér app-
elsínu, ef þú getur sagt mér hvar guS
er“.
Óli: ,,Og ég skal gefa þér tvær app-
elsínur ef þú getur sagt mér hvar
hann er ekki“.
UNGA ÍSLAND
Eign RautSa Kross íslands.
Kemur út I 1G siSu heftum, 10 sinnum á. árl.
10. heftiS er vandaS jölahefti.
Skilvisir kaupendur fá auk þess
Almanak skölabarna.
VerS blaSsins er aSeins kr. 2,50 árg.
Gjalddagi blaSsins er 1. april.
Ritstjórn annast:
Arngrímior Kristjánsson og
Kristín Thoroddsen.
AfgreiSslu og innheimtu blaSsins annast
skrifstofa RauSa Ivrossins, Hafnarstræti 5,
herbergi 1G—17 (MjólkurféíagshúsiS). Sltrif-
stofutimi kl. 10—12 og 2—4. Póstbox 927.
PrentaS 1 ísafoldarprentsmiS ju.__
Hestanöfn:
Stjarni, Fákur, Skarfur, Skjóni,
Skjöldur, Prati, Drífa, Mjóni,
Máni, Rauður, Gormur, Glúmur,
Glói, Baldur, Hrollur, Skúmur.
Kúanöfn:
Krossa, Hyrna, Bauga, Branda,
Bára, Lukka, Hálsa, Randa,
Kola, Gríma, Gæfa, Alda,
Grýla, Héla, Dimma, Skjalda.
Kindanöfn:
Botna, Hyrna, Hálsa, Lúpa,
Hatta, Spíka, Laufa, Rjúpa,
Dyrgja, Golsa, Surtla, Svört,
Sóley, Flekka, Mjóna, Björt.
Hundanöfn:
Valur, Trampi, Porri, Píla,
Púki, Kópur, Fulla, Díla,
Tryggur, Bangsi, Týrus, Hringur,
Títla, Karó, Smali, Slyngur.
Skuggi.