Unga Ísland - 01.04.1938, Blaðsíða 13

Unga Ísland - 01.04.1938, Blaðsíða 13
UNGA ISLAND 53 Anna Borg og Poul Reumerf / koma til Islands. Mynd þessi er af hinum frægu leik- endum, Reumerthjónunum. Hann, Poul Reumert, er danskur, en kona hans, Anna Borg er íslendingur. Þau eru nú tvímælalaust með frægustu leikurum á Norðurlöndum. Þau eru búsett í Kaup- mannahöfn og starfa við leikhús borg- arinnar. Þau hafa þó einnig oft á síð- ari árum leikið sem gestir í frægustu leikhúsum í Evrópu. Um þessar mundir gista þau hjónin, ættland frúarinnar, og leika sem gestir hér í Reykjavík í tveimur leiksýning- um. Það verður mikill munur fyrir Reu- merthjónin, að hverfa allt í einu frá hinum glæsilegu leikhúsum Kaupmanna hafnar, og fara að leika á litlu og ófull- komnu leiksviði, hér norðurfrá, fyrir fámenni og við fátækleg skilyrði. — En þetta leiksvið er samt sem áður fyrsta leiksviðið, er frú Anna Borg Reumert lék á, og það mun þeim hjónunum báð- um vera jafn’kært, því í sannleika sagt, hefir það fóstrað hina frábæru leikkonu, á sinn hátt eins og þegar fátæk alþýðu- heimili skila mikilmennum út í heiminn.

x

Unga Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.