Unga Ísland - 01.04.1939, Blaðsíða 11
51
UNGA ÍSLAND -----------------------
7/7 kaupenda Unga Islands.
Unga ísland er 34 ára. Á þessum
árum hefir eitt hið merkilgeasta tíma-
bil gengið yfir þjóð vora og þegna.
Þetta hefir verið tími frelsisbaráttunn-
ar, tími fullveldisviðurkenningarinnar,
tími framfaranna, tími bættra lífsskil-
yrða og aukinna samgangna. En þetta
hefir líka verið tími mikilla átaka og
þungra erfiðleika á ýmsum sviðum
þjóðlífsins — en slíkir tímar koma ætíð
þangað, sem mikið er gert af litlum
efnum.
Unga ísland hefir horft á þessa tíma,
og lifað þá, um leið og það hefir fund-
ið til sveiflanna, sem orðið hafa á milli
ljóss og skugga með þjóðinni.
Það má éf til vill komast svo að orði,
að Unga fsland hafi verið einn af þegn-
um þjóðfélagsins, og efni hans og á-
stæður skapast í samræmi við þau skil-
yrði — eins og annara þegna þess —
sem fyrir eru í landinu á hverjum
tíma. En við vitum það öll, að breyttir
tímar skapa breytt viðhorf á öllum
sviðum, sem hafa í för með sér erfið-
leika á hendur þeim, sem við það þurfa
að búa — eða þá hið gagnstæða —
eftir því hvernig skipast hverju sinni.
Eftir því, sem þegnum þjóðfélagsins
hefir vegnað betur, þess betur hefir
Unga íslandi vegnað, og lífi þess og
framtíð verið borgið eftir því.
Erfiðleikar undanfarandi ára hafa
skapað það viðhorf, að stjórnendur
lands vors hafa talið það nauðsynlegt,
að lækká verðgildi íslenzks gjaldeyris,
og þetta breytta viðhorf hefir barið að
dyrum Unga íslands eins og annara
þegna þjóðarinnar, og skapað blaðinu
aukna örðugleika.
í þessi 34 ár hafa vandamál þau,
sem steðjað hafa að Unga Islandi — á
stundum — ekki skapast innan frá.
Blaðið hefir ætíð leitast við að flytja
lesendum sínum fjölbreytt og valið efni
— og það mun óhætt að fullyrða, að
vel hafi tekist í þeim efnum, ef dæma
má af þeim vinsældum, sem Unga Is-
land hefir átt að fagna út um land allt
frá lesendum sínum á öllum aldri.
Þessu veldur, að jafnan hefir U. I.
haft hina mætustu menn í þjónustu
sinni, sem kunnað hafa skil á vilja og
óskum æskunnar í landi voru, en það
er hið unga ísland — æska landsins,
sem helgar sér blaðið og gefur því líf-
rænan mátt.
Það eru erfiðleikarnir utan frá, sem
sveigt hafa hjör sinn að hjartastað
Unga íslands, og stundum ógnað lífi
þess. Það eru hinir fjárhagslegu örðug-
leikar.
Hingað til hefir blaðinu tekist að
yfirstíga þessa örðugleika, án þess að
það yrði á kostnað innra efnis blaðsins
eða útlits þess. Það hefir meira að segja
hin síðari árin fært út svið sitt með
útgáfu „Almanaks skólabarna“, og nú
fyrir skemmstu komið í „nýjum klæð-
um“, og hvortveggju þetta hefir aukið
á vinsældir þess. En nú virðist alda
örðugleikanna ríða hvað hæst, og stefna
óðfluga að fjöri þessa fjölkynnta barna-
vinar.
Örðugleikarnir eiga rót sína í því,
hve kostnaðarsamt er orðið um útgáfu
slíks rits sem Unga Island er, enda
er blaðið ódýrara en öll önnur slík rit,
eða sambærileg blöð.