Unga Ísland - 01.04.1939, Page 19

Unga Ísland - 01.04.1939, Page 19
59 UNGA ÍSLAND ------------------- Hann hrekkur til lífsins frá hálf- lesnri bæn. Augun í kisu á hann stara græn. Svo lagði hann til byggða með hríð- ina á hlið. Undan fór kisa, en oft leit hún við. Áfram er haldið í aftaka hríð. Ljósin í gluggunum loga í Hlíð. Kominn er Sigurður lclakklaust í hlað. Guði og kettinum þakkar hann það. Fram undir túngarði fyrir sunnan bæ, liggur í skaflinum loðið kattarhræ. — Hafliði M. Sæmundsson. Veðmálið. Á bóndabæ nokkrum í Danmörku voru tveir vinnumenn. Annar var lítill og væskilslegur, hinn stór og sterkleg- ur. Eitt sinn segir sá litli við þann stóra: „Ég get ekið hjólbörum 500 m. með þungu hlassi á, sem þú getur ekki ekið“. Sá stóri sýndi sína stæltu vöðva og sagðist halda, að hann gæti nú ekið hjólbörum, hvað sem í þær væri látið. Þetta endaði með því, að þeir veðj- uðu fimm krónum. Því næst náðu þeir í hjólbörur og sá litli átti að hlaðá þær og aka þeim 500 metra, en sá stóri átti að aka þeim til baka. „Jæja, sestu þá upp í“, sagði sá litli sigri hrósandi. „ég skal aka þér, og svo getur þú reynt að aka hlassinu til baka“. Hvor vann fimm krónurnar? — ÞRAUTIR. 1) Skiptu réttum ferhyrningi í 4 jafna hluta, þannig, að enginn hlut- anna sé rétthyrndur. 2) I hvaða röð myndu eftirtöld orð vera í orðabók: markaður, skyr, bif- reið, fyrstur, duglegur? 3) Drengur nokkur sagði einu sinni við félaga sína: „Ef ég hef 5 eldspýt- ur, get ég raðað þeim þannig, að þær myndi töluna 19. Hvernig fer hann að því? 4) Hvaða tölur vantar í eftirfarandi dæmi? a) 721 b) 5431 5 0 26 9 + 629 -------- ------- 2802 1880 TIL ATHUGUNAR. 1. — Skrifborðið mitt stendur við glugga, sem sólin skín inn um á há- degi. í hvaða átt sný ég mér, hafi ég gluggann á vinstri hönd? 2. — 1 búð, sem Nonni kemur inn í eru tvær tegundir af eplum. Betri eplin kosta 10 aura, hin 5 aura stykkið. — Nonni keypti 8 epli fyrir 60 aura. — Hve mörg af betri eplunum keypti hann ? 3. — ‘Fimm orð eru skrifuð innan sviga eftir orðinu bóndabýli. — Bónda- býli (fjós, flugvél, ljón, stýri, plógur). — Flugvél, ljón og stýri eru ekki und- cf 1 59 h- 473 686

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.