Unga Ísland - 01.08.1939, Blaðsíða 6
94
—=- UNGA ÍSLÁND
Smálands-s túlkurnar.
þeirra síðan stofnað árið 1863 í Généve.
Síðan hefir vegur og vald þess félags-
skapar stöðugt farið vaxandi, og þó
einkum á ófriðarárunum 1914—18, og
líknar og hjúkrastarf þeirra verið ó-
metanlega mikils virði fyrir heiminn.
En þó að starf þessara félaga hafi upp-
haflega verið miðað við ástand á ófrið-
artímum, er það nú orðið miklu víð-
tækara og engu minna á friðartím-
um, og mótast þá einkum af heilsu-
vernd, líknarstarfsemi og aukinni vin-
áttu og kynningu þjóðanna.
Þetta eru þá nokkur helstu atriðin úr
æfi þessa víðfeðma félagsskapar, sem
ég vildi segja ykkur, því að eitt félagið
í alþjóðasambandi Rauða Krossins — þ.
e. Rauði Kross Islands — gefur út blað-
ið sem þið nú eruð að lesa, Unga ísland,
og því þótti mér viðeigandi að þið viss-
uð eitthvað um þennan félagsskap.
Og þá komum við að ungliðadeildun-
um.
Fyrstu ungliðadeildirnar eru stofnað-
ar í Ameríku á stríðsárumun og kom
þá þegar í Ijós, að hlutverk þeirra var
mikið og fagurt, til velfarnaðar og
blessunar bæði þeim, sem störfuðu í
deildunum sjálfum undir einkunnarorð-
inu: „Ég hjálpa“ innan fagurra hug-
sjóna og fyrirætlana, og eins hinna, sem
urðu hjálparinnar aðnjótandi. Deildir
þessar söfnuðu smá gjöfum og gripum,
er þær svo sendu á vígveilina í sjúkra-
húsin til hinna særðu hermanna, og
glöddu þannig þúsundir særðar og vol-
aðar sálir, auk þess sem þær söfnuðu
ógrynni af sáraumbúðum og lýfjum.
Svona hélt starfi þeirra áfram ófriðar-
árin, og ungliðadeildir urðu stofnaðar
í Evrópu og víða um lönd.
En nú kunnið þið ef til vill að spyrja:
Hvar hafa deildir þessar einkum haslað
sér völl til starfsins og hvernig eru þær
skipulagðar ?
Út um gervallan heim, þar sem ung-
liðadeildir eru starfandi, eru barnaskól-
arnir aðal-heimkynni þeirra, og fyrir
ötula aðstoð og stuðning kennarastétt-
arinnar, sem skilið hefir og kunnað að
meta hugsjónir og störf Rauða Kross
félaganna, hafa ungliðadeildirnar átt
heimili innan veggja barnaskólanna.
Það var í Póllandi sem fyrstu ungliða-
deildirnar voru stofnaðar í Evrópu og
þaðan breiddust þær svo óðfluga yl'ir
álfuna.
Það væri of langt mál hér að tína til
Pólskir ungliðar.