Unga Ísland - 01.03.1941, Side 4
íelsson frá Kaldárholti, hann er nú
látinn, en var bóndi í Guttormshaga.
Guðmundur vann í æsku öll venju-
leg sveitastörf svo sem títt er um
sveita unglinga, en var einnig sjó-
maður í Grindavík og Eyjum um
vetrarvertíðir, sem einnig er alsiða af
ungum sveitapiltum á Suðurlandi.
Nám stundaði Guðmundur í Laugar-
vatnsskóla í tvo vetur, fór síðan í
Kennaraskólann og lauk þaðan prófi
1934. Hann er nú skólastjórj við
barnaskólann á Suðureyri við Súg-
andafjörð.
Eftir Guðm. Daníelsson hafa kom-
ið út eftirtaldar bækur:
,,Ég heilsa þér“ (ljóð) 1933.
,,Bræðurnir í Grashaga (skáldsaga)
1935.
„Ilmur daganna“ (skálds.) 1936.
„Gegnum lystigarðinn“ (skáldsaga
1938.
„Á bökkum Bolafljóts“ 2. bindi
(skáldsaga) 1940.
Þá er í prentun eftir hann skáldsagan
„Eldur“, og mun hún koma út á
þessu ári.
VETUR
Hefir þú, vetur, svölum fönnum fyllt
falleg'ar lautir, þar sem spóinn söng
um sumarkvöldin rósalit og löng
og loftið var svo undra blátt og gylltf
Þá átti nótt.in engar stjörnur til
og ekkert húm né norðurljósaglit,
en hún var hlý af ást og ljós að lit,
ljóðræn og blíð sem fjarlægt gítarspil.
Hefir þú, vetur, syæft hvern sumaróð
í sortanum mikla lengst í norðurátt"?
Því ertu að hlæja — hlæja svona dátt,
heilagi vetur, þú, sem yrkir ljóð?
Eg las þau einn morgun meðan enn var kalt,
— einn morgun, er hrímið þakti gluggann
minn.
Þeir drógu þar rósir, guð og gaddurinn,
með gegnsæjum fingrum. — Svo var ljóð þitt
allt. .
Mjallföli vetur, myrk er nóttin þín,
en mennirnir kveikja — kveikja þögul Ijós
og láta sig dreyma sumarauða rós,
meðan rokið þitt blæs og týran þeirra skín.
Ivafald þitt hylur kofann út með sjó.
Kveddu þín svefnljóð yfir henni jörð,
sem fer um geiminn köld og klakahörð
í kápu, sem er úr himinföllnum snjó.
Guðm. Daníelsson.
P. Bangsgaard: Ibúar heiðarinnar
Refahjónin ráfuðu allan daginn
um skóginn. Um kvöldið, þegar
dimmt var orðið, læddust þau heim
að húsum og bæjum. Þefurinn af alls-
konar lifandi skepnumfreistaðiþeirra,
en alltaf varð eitthvað fyrir þeim,
sem gerði þau hrædd og rak þau á
34
Þýtt hefir Sigurður Helgason
flótta, og árangurinn af öllu þessu
rjátli varð enginn, en þau urðu allt-
af svengri og svengri. — Tunglið kom
upp og varpaði fölum bjarma yfir
alhvíta jörðina. Og allt í einu fundu
þau þef í loftinu, sem enn þá einu
sinni vakti vonir þeirra um góða mál-
UNGA ÍSLAND