Unga Ísland - 01.03.1941, Page 15

Unga Ísland - 01.03.1941, Page 15
yfirboðara síns. En ég hugsaði mér að sýna nú að ég væri ekkert löðurmenni og hélt sem fastast í bandið. Kolskeggur hljóp nú í nokkra króka og hringi, en ég gætti þess að láta hann ekki leika á mig og mætti sveifl- um hans með festu, kunnáttu og furðu- miklu öryggi, eða svo fannst mér sjálf- um að minnsta kosti. Þessir spi'ettir hans voru þó fremur meinlitlir, enda gekk allt slysalaust fyrir mér, þó ber ég ekki á móti því nú, að oftar en einu sinni var ég næri’i dottinn. Þannig gekk þessi leikur nokkra slund. En allt í einu breytti Kolskegg- ur um ákvörðun. Hann rumdi og setti hausinn niður að jörð og ég sá ekki betur, en að hann ætlaði að ráðast að mér á sama hátt og mannýgir bolar gera. Mér 'varð auðvitað mikið um þetta og lagði strax á flótta. Ekki sleppti ég þó bandinu, sem var um háls Kolskeggs. — Örskammt frá okkur var flag, sem skorið hafði verið ofan af haustið áður. Þökurnar voru í löngum hlaða allt í kringum flagið. Næstum óafvitandi hljóp ég yfir þökuhlaðann og inn í flagið. Þegar Kolskeggur sá, að ég var horfinn, hélt hann áfram að ærslast, on komst ekki langt, því að nú hélt eg sem fastast í bandið og var hinn öruggasti. Ekki þorði ég samt út fyrir þetta varnarvirki mitt fyrr en pabbi kom og sótti Kolskegg og teymdi hann burt. En fyrr en varði var veturinn lið- mn og vorið með blíðu sína og gróður heimtaði nautpeninginn út undir bert loft eftir innistöður vetrarins. °g svo hófst sá dagur, að kúnum var í fyrsta sinni á því vori hleypt út í sol og sumar. Það var dagur söngva og UNGA ÍSLAND ærsla. Kolskeggur fékk auðvitað að fara líka; hann var orðinn svo stór. En í fyrstu geðjaðist honum ekkert sér- staklega vel að hamförum Búkollu mömmu sinnar og vinkonu hennar. Og 'nú yar það hann, sem flýc)i. Hann klöngraðist áfram yfir þúfur og grjót, hrasaði og komst aftur á fæturna. En hvernig, sem hann reyndi að komast burt af leikvangi kúnna, var hann allt af mitt á meðal þeirra. Þannig hrakt- ist hann aftur og fram, stöðugt eltur. Smátt og smátt vandist hann svo þessum ósköpum og vorið leið án þess að nokkur sérstakt bæri til tíðinda. Yfir sumartímann var beitiland kúnna með fram Skorradalsvatni, í austur frá bænum. Næsti bær að aust- an heitir Vatnshorn og er langt á milli bæjanna. — Á jarðarmerkjunum var girðing úr gaddavír, en heldur léleg, eða aðeins einn vírstrengur. Allmiklu lengra er frá bænum Vatnshorni, en Haga, að girðingu þessari. Ekki get ég sagt að girðingin stæð- ist fyllilega þá raun, sem henni var ætluð, en hún var sú, að varna því, að kýrnar frá bæjunum, hvorurn fyr- ir sig, legðu leið sína of langt inn í land hins, En þó var ásóknin af kúnna hálfu langtum meiri hjá ,,mínum“ kúm, enda voru þær færri og áttu þær skemmri leið að hinni óvinsælu hindr- un, girðingunni. Eins og ég hefi áður getið um. var ég kúasmali þetta sumar og féll það starf misjafnlega, enda þótt ég væri því vanur áður. í sæmilegu veðri og ef vel gekk að finna kýrnar, var þetta starf mitt geðfellt, en ef girðingin brást og ég varð að leita svo og svo lengi að kúnum í Vatnshornshlíð, en þar er bæði þéttur og hávaxinn skóg- 45

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.