Unga Ísland - 01.03.1941, Side 17

Unga Ísland - 01.03.1941, Side 17
UNGA ÍSLAND Eig-n Rauða Ivross íslands. Kemur út 10 sinnura á ári í 16 síðu heftum. Gjalddagi 1. apríl. . Verð blaðsins er kr. 4,50 árg. Ritstjórar: Stefán Jðnsson, SlgurtSur Helgason. Frarakvæmdastjórn blaðsins annast: Arngrímur Kristjánsson. Afgreiðsla er í skrifstofu Rauða Krossins, Hafnarstræti 5 (Mjólkurfélagsíiúsinu). Pósthólf 927: Prentað í ísafoldarprentsmiðju h.f. stóran, þéttan runna; framundan var rjóður og þá . . . Ég hikaði skyndilega. Svartur stóð í rjóðrinu og hvessti á mig augu og eyru. Á bak við hann stóð Kolskeggur. Ég tók til fótanna. — I fyrstu varð mér hugsað til slægju- blettarins, en ég hvarf þó frá að leita þangað, en hraðaði ferð minni heim- leiðis, eins og mér var unnt. Að baki mér kvað við tvíraddaðan söng, dimm- an og ögrandi. Það voru kveðjuorð Svarts og Kolskeggs til mín. Kýrnar ,,mínar“ höfðu rölt áfram heimleiðis. Ég lokaði hliði girðingarinnar og var nú öruggur. Af Kolskegg er það að segja, að næsta morgun var hann kominn heim að fjósdyrum af sjálfsdáðum. Það var nóg af honum. Þessari frásögn er nú að verða lok- ið. Kolskeggur tilheyrði þeim flokki húsdýranna, sem sjaldnast á sér mikla né merka atburðasögu. Og Kolskeggur varð ekki gamall. Síðari hluta næsta vetrar í góðu veðri var kjöt hans flutt héiman árla dags á tveim reiðingshestum. Þann morgun var ég snemma á fótum. Sjálfsagt hafa barnslegar minningar frá sam- vistunum við hann verið í huga mínum UNGA ÍSLAND ÞRAUTIR — LEIKIR AS skrifa sögu, Þessi leikur getur oft vakið mikinn hlátur. Nú stendur þannig á, að þú ert að skemmta þér með félögum þínum og þið hafið farið í ýmsa leiki. Dett- ur þá einum ykkar í hug að skrifa sögu og fær sér blað og blýant. Sag- an, sem hann skrifar, getur verið um hvað sem er, en venjulega vekur hún mestan fögnuð, sé hún um þáttakend- ur sjálfa. Sá, sem söguna skrifar, hugsar sér að sjálfsögðu einhvern söguþráð og gætir þess, að sagan rúmi sem allra mest af lýsingarorðum. — Lýsingarorðin skrifar hann þó ekki strax, en hefur eyðu alls ‘staðar þar, sem þau gætu verið. Er hann hefur lokið við að skrifa aðalsöguþráðinn, biður hann þá, sem viðstaddir eru, að koma með lýsing- arorð og skrifar þau nú inn í eyð- urnar jafnóðum og þau berast til hans. Byrjar á fremstu eyðu og þannig áfram, unz sagan er fullgjör. Þá les hann söguna upp fyrir viðstadda. Vit- anlega verður sögumaður að gæta þess vel að láta engan vita um efni sög- unnar fyrr en hann les hana, svo að engan geti grunað við hvað lýsingar- orðin eiga um leið og þau eru gefin. Slíkar sögur verða oft mjög hlálegar og hafa fullorðnir engu síður gaman af þeim en börn. þá, eða kannske mér hafi verið gjarn- ara á að hugsa um heita slátrið, sem von var á síðari hluta dagsins. Það var minn uppáhalds matur. Þann gerðist líka annar atburður. Bróðir Kolskeggs, fjögra mánaða gamall, var fluttur á básinn hans í fjósinu. 47

x

Unga Ísland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.