Unga Ísland - 01.04.1941, Page 9

Unga Ísland - 01.04.1941, Page 9
Allir voru árla á fótum í Vindheim- um. Það átti að reka snemma af stað. Björn litli labbaði með norður að lambhúsinu. Hann vildi vera viðstaddur, er lagt yrði af stað. Hann hleypti út lömb- unum. Svarta gimbrin hans kom fyrst, svo hvert af öðru. Vissulega var hún með fallegustu og stærstu lömbunum! Björn stóð eins og dáleiddur. Hann rankaði við sér, er faðir hans lagði hönd sína á öxl honum: — Jæja, drengur minn, vertu nú ssell, sagði hann. — Vertu sæll, svaraði Bjössi og sneri sér við í áttina að lömbunum. Faðir hans flýtti sér á bak Skjóna sínum og gerði smell með svipunni. — Af stað, sagði hann. Snati gelti og svo lagði hópurinn af stað. En allt í einu tók Litla-Svört við- bragð og hljóp út úr hópnum. Sig- hvatur ætlaði að komast fyrir hana, en of seint. Hún var þegar komin yfir girðinguna fyrir vestan. — Sighvatur ætlaði sér að hlaupa á eftir henni, en Jón hrópaði: — Láttu hana bara eiga sig. Mig munar ekkert um að fóðra hana í vet- ur úr því svona fór. Bjössi á þá bara tvær kindur næsta vor, ef þessi lifir. Hann veifaði hendinni hlægjandi til sonar síns. Bjössi veifaði á móti. — Ég ætla að skíra hana Ófeig, og ég ætla sjálfur að gefa henni í vetur, kallaði hann. — Rétt drengur minn, anzaði faðir hans og hvatti hest sinn á eftir hinum dauðadæmdu lömbum, er runnu jarm- andi norður göturnar. En heima á lambhúsveggnum sat Bjössi litli. Hann hló og horfði út á mýrina, þar sem nokkrar kindur voru á beit, og hugsaði með gleði um Ófeig litlu, sem bjargaði lífi sínu á síðustu stundu. Góð barnabók Af öllum barnabókum, er út komu síðastliðið haust, mun óhætt að full- y^’ða, að fáar eða engin hafi betur upp- ^yllt þá tvo höfuðkosti, að vera í senn fi’óðleg og skemmtileg en bókin „Um l°ftin blá“, eftir Sig. Thorlacius skóla- stjóra. Sigurður hefir áður gefið út barna- bókina ,,Sumardagar“; hlaut sú bók rniklar vinsældir unglinga og að verð- LNGA ísland leikum. „Sumardagar" er sagan um ær- ina og lambið hennar, eitt íslenzkt sum- ar inn á afréttinum. „Um loftin blá“ er aftur á móti sagan um blikann og æð- arkolluna, auk þess sem hún bregður upp skýrri og ógleymanlegri mynd úr lífi fuglanna yfirleitt, eitt daglangt sumar og skuggalegan vetur, unz vorar á ný. Unga ísland þorir fullkomlega að mæla með þessari bók. ★ Myndin framan á kápu þessa heftis er fengin að láni úr bókinni og heitir þar „Tindilvængja við hreiðrið sitt“. 55

x

Unga Ísland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Unga Ísland
https://timarit.is/publication/894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.